Áhrif mengandi efna á krækling (Mytilus edulis) í höfnum á Suðurnesjum skoðuð með notkun lífmerkja

Mengandi efni svo sem fjölhringa kolvatnsefni (e. polycyclic aromatic hydrocarbons, PAH), fjölklóruð tvífenýl efni (e. polychlorinated phenyls, PCB), lífræn tinsambönd og málmar finnast víða um heiminn og eru helstu uppsprettur þeirra vegna athafna mannsins. Hafnir eru sérstaklega útsettar fyrir men...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Sandra Dögg Georgsdóttir 1999-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2022
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/41370
Description
Summary:Mengandi efni svo sem fjölhringa kolvatnsefni (e. polycyclic aromatic hydrocarbons, PAH), fjölklóruð tvífenýl efni (e. polychlorinated phenyls, PCB), lífræn tinsambönd og málmar finnast víða um heiminn og eru helstu uppsprettur þeirra vegna athafna mannsins. Hafnir eru sérstaklega útsettar fyrir mengun og eru hafnarsvæði oft helsta mengunaruppsprettan í sjó hér á landi. Kræklingur (Mytilus spp.) er algeng vöktunarlífvera fyrir mengun víða um heim, þ.á.m. á Íslandi. Áhrif mengunarefna á lífverur eru oft metin með lífmerkjum (e. biomarkers) og eru ýmis lífmerki til. Í þessari rannsókn var notast við lífmerkin, „Stress-on-Stress“ (SoS), asetylkólínesterasa (AChE), glútaþíón S-transferasa (GST), glútaþíón peroxídasa (GPx) og katalasa (CAT) í tálknum og meltingarkirtli í kræklingi til að kanna mengunarálag í höfnum á Suðurnesjum. Kræklingi var safnað í Sandgerðishöfn, Grindavíkurhöfn og Njarðvíkurhöfn, og til viðmiðunar í Hvassahrauni. Markmið verkefnisins var að nota lífmerki ásamt efnagreiningum til að meta möguleg líffræðileg áhrif mengunar í höfnunum og jafnframt að skoða notagildi lífmerkja og mögulega fylgni milli efnainnihalds og mældra lífmerkja. SoS gaf til kynna að kræklingar á öllum stöðvum væru tiltölulega heilbrigðir. Virkni GST, GPx og CAT var hærri í kræklingum frá Sandgerði, Njarðvík og Grindavík, miðað við Hvassahraun sem bendir til mengunarálags í höfnunum. Ekki fannst marktækur munur á virkni AChE milli hafnanna og Hvassahrauns. Efnagreiningar sýndu ekki fram á mikla hættu á áhrifum vegna mengunar en þó var styrkur sumra efna yfir umhverfismörkum og jafnvel yfir áhrifagildum. Niðurstöðurnar sýna að hægt er að nota þau lífmerki sem hér voru mæld til að meta mengun í höfnum hér á landi. Mengun mun að öllum líkindum halda áfram að aukast með aukinni skipaumferð og er því nauðsynlegt að fylgjast með framvindu mengunar og áhrifum hennar á lífríki sjávar. Pollutants such as polycyclic aromatic hydrocarbons (PAHs), polychlorinated biphenyls PCBs, organotin compounds, and metals are found all over the ...