Summary: | Tilgangur: Áhrif hjartaendurhæfingar á Íslandi fyrir einstaklinga sem hafa farið í ósæðarlokuísetningu með þræðingartækni (TAVI aðgerð) hafa ekki verið rannsökuð. Markmið þessarar rannsóknar er að greina árangur hjartaendurhæfingar (stig II), á HL stöðinni í Reykjavík, á hámarksafkastagetu einstaklinga sem farið hafa í TAVI aðgerð á Íslandi á tímabilinu 2012-2021. Efni og aðferðir: Greind voru gögn tíu einstaklinga sem fóru í TAVI aðgerð á Íslandi á árunum 2012-2021 og sóttu hjartaendurhæfingu á HL stöðinni í Reykjavík í kjölfarið. Gerð var krafa að einstaklingurinn hefði farið í þolpróf með hámarksafköstum við upphaf og lok þjálfunartímabilsins til að hægt væri að nýta gögnin. Pöruð T-próf voru framkvæmd til að meta árangur þátttakendanna ásamt því að blönduð dreifnigreining var notuð til að meta víxlhrif á milli breyta. Niðurstöður: Við upphafsmælingu var meðalaldur þátttakanda 76,4 ár, meðal hámarksafl þeirra var 115,2 w og meðalþrektala þeirra var 1,39 w/kg (spönn 0,7 – 2,1). Afkastageta þátttakendanna jókst að meðaltali um 9,4% (0,13 w/kg), spönnin var frá -8% versnun upp í 29% bætingu á afkastagetu. Ekki var marktæk jákvæð breyting á afkastagetu þátttakanda (p = 0,057). Marktæk jákvæð breyting var á hámarksafli þátttakanda (p = 0,027) en hámarksafl jókst um 11,4%. Ekki var marktækur munur á öðrum breytum. Víxlhrif voru ekki marktæk á milli kynja (p = 0,945), á milli aldurshópa (p = 0,524) né á milli hópa skipt eftir ástundun (p = 0,441), og mun á afkastagetu. Ályktun: Hjartaendurhæfing á HL stöðinni í Reykjavík eykur afkastagetu hjá meirihluta einstaklinga sem farið hafa í TAVI aðgerð. Samt sem áður er aukningin ekki tölfræðilega marktæk. Hámarksafl þátttakanda jókst marktækt yfir þjálfunartímabilið. Vegna lítils gagnasafns er tölfræðiafl rannsóknarinnar tiltölulega lítið, sérstaklega ef hópnum er skipt í tvennt eftir mismunandi skilgreiningum. Því má álykta að þessi rannsókn gefi einungis vísbendingar fyrir áhrifum hjartaendurhæfingar á afkastagetu hjá einstaklingum sem hafa farið í TAVI aðgerð.
|