Summary: | Inngangur: Þol barna með Cerebral Palsy (CP) hefur ekki verið rannsakað áður hér á landi. Niðurstöður erlendra rannsókna hafa sýnt fram á að þol barna með CP sé minna miðað við ófatlaða jafnaldra. Minna þoli getur fylgt skerðing á athöfnum og takmarkanir á þátttöku. Börn með CP þurfa meiri orku en jafnaldrar til að framkvæma ýmsar athafnir, sem eykur mikilvægi þols fyrir börn með CP. Markmið: Að skoða hvort munur væri á þoli barna með CP og ófatlaðra jafnaldra á Íslandi. Aðferðafræði: Þátttakendur voru 23 börn á aldrinum 8–16 ára með CP og grófhreyfifærni í flokkum I–III samkvæmt Gross Motor Function Classification System (GMFCS) og samsvarandi hópur jafnaldra hvað varðar aldur og kyn. Allir þátttakendur tóku þátt í sex mínútna gönguprófi og Early Activity Scale for Endurance (EASE) spurningalistinn var lagður fyrir forsjáraðila barna á aldrinum 8–12 ára. Samband milli sex mínútna gönguprófsins og EASE spurningalistans var metið. Niðurstöður: Ekki var munur á hópunum í aldri, hæð, þyngd, líkamsþyngdarstuðli og kynjahlutfalli. Ekki var marktækur munur á reglulegri íþróttaiðkun milli hópanna. Þol barna með CP var marktækt minna en þol ófatlaðra barna, samkvæmt sex mínútna gönguprófi (p <,001) og EASE spurningalistanum (p = 0,023). Jákvæð tengsl voru til staðar milli sex mínútna gönguprófsins og EASE spurningalistans (p <,001). Ályktanir: Niðurstöðurnar benda til þess að börn með CP og grófhreyfifærni í flokkum I–III séu með minna þol en ófatlaðir jafnaldrar. Niðurstöður þessarar rannsóknar gefa tilkynna að þörf sé á að auka þol barna með CP og tryggja að þau geti tekið þátt í sömu athöfnum og jafnaldrar þeirra. Introduction: The endurance of children with cerebral palsy (CP) has not been studied in Iceland before. Research from other countries has shown that the endurance of children with CP is less when compared to their peers. Low endurance levels may lead to activity limitations and participation restrictions. Children with CP need more energy than their peers to perform various activities, so endurance ...
|