Uppbygging sjávarlíftæknivettvangs í Vestmannaeyjum

Lengi vel hefur sjávarútvegur verið ein stærsta og mikilvægasta atvinnugrein Íslendinga. Með tilkomu kvótakerfisins og stjórnunar fiskveiða átti sér stað mikil hugafarsbreyting. Með því að takmarka sókn fiskveiða var áherslan nú lögð á aukna verðmætasköpun aflans með því að betrumbæta vinnsluhætti o...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Alexandra Evudóttir 1990-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2022
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/41273
Description
Summary:Lengi vel hefur sjávarútvegur verið ein stærsta og mikilvægasta atvinnugrein Íslendinga. Með tilkomu kvótakerfisins og stjórnunar fiskveiða átti sér stað mikil hugafarsbreyting. Með því að takmarka sókn fiskveiða var áherslan nú lögð á aukna verðmætasköpun aflans með því að betrumbæta vinnsluhætti og auka gæði hráefnis. Margar hliðargreinar sjávarútvegs fóru nú að skipta meira máli og í þessu verkefni verður sjónum beint að einni þeirra sem er sjávarlíftækni. Árið 2021 fékk Þekkingarsetur Vestmannaeyja ásamt Vestmannaeyjabæ styrk í gegnum nýsköpunarsjóð Lóunnar í verkefni sem ber titilinn „Vestmannaeyjar – miðstöð sjávarlíftækni á Íslandi“. Tilgangur verkefnisins er að efla frumkvöðla- og þekkingarstarfsemi í Vestmannaeyjum með það að markmiði að skapa breiðan vettvang á sviði sjávarlíftækni sem hefur tengingu við iðnaðinn, háskólana og þekkingarfyrirtæki. Tilgangur þessarar ritgerðar er að framkvæma PESTEL greiningu og reyna að meta þætti í ytra umhverfi sem gætu haft áhrif á uppbyggingu sjávarlíftæknivettvangs í Vestmannaeyjum ásamt því að framkvæma SVÓT greiningu til að gera grein fyrir þeim styrkleikum, veikleikum, ógnunum og tækifærum sem eru til staðar. Á grundvelli niðurstaðnanna verða lögð fram drög að stefnumótun við uppbyggingu sjávarlíftæknivettvangs í Vestmannaeyjum. Settar voru fram tvær rannsóknarspurningar: Eru Vestmannaeyjar ákjósanlegur staður fyrir sjávarlíftæknivettvang? Og hvaða styrkleikar, veikleikar, ógnanir og tækifæri þarf að hafa í huga við uppbyggingu sjávarlíftæknivettvangs í Vestmannaeyjum?