Vímuefnaneysla í æð: Rannsókn á notuðum sprautunálum í Reykjavík

Vímuefnaneysla í æð er veigamikill áhrifaþáttur í ótímabærum veikindum á heimsvísu. Rannsóknir á vímuefnaneyslu í æð byggja að miklu leyti á frásögnum einstaklinga á meðferðarstofnunum, lítið er því vitað um þá sem nota vímuefni í æð en leita sér ekki lækninga. Rannsóknin byggir á evrópskri samvinnu...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Hjördís Tinna Pálmadóttir 1997-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2022
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/41242
Description
Summary:Vímuefnaneysla í æð er veigamikill áhrifaþáttur í ótímabærum veikindum á heimsvísu. Rannsóknir á vímuefnaneyslu í æð byggja að miklu leyti á frásögnum einstaklinga á meðferðarstofnunum, lítið er því vitað um þá sem nota vímuefni í æð en leita sér ekki lækninga. Rannsóknin byggir á evrópskri samvinnurannsókn (ESCAPE) sem sett var á laggirnar til að fylgjast með hvaða vímuefni finnast í notuðum sprautubúnaði með efnafræðilegri greiningu. Með aukinni vitneskju um hvaða vímuefni eru í notkun má bæta skaðaminnkandi þjónustu við einstaklinga sem nota vímuefni í æð og draga úr skaðlegum áhrifum neyslunnar. Meginmarkmið rannsóknarinnar var að skoða hvaða vímuefni finnast í notuðum sprautubúnaði sem skilað er til förgunar, hvaða efni er algengast að finna og algengi þess að fleiri en eitt efni finnist í hverri sprautu. Efniviður og aðferðir: Notuðum sprautubúnaði var safnað frá október 2021 til mars 2022 í Reykjavík. Engin samskipti voru milli notenda sprautubúnaðarins og þess sem aflaði gagna. Ein sprauta var tekin úr hverju nálaboxi til að lágmarka líkur á að fleiri en eitt sýni fengist frá sama einstaklingi. Alls var 203 sýnum var safnað á tímabilinu. Eftir sýnameðhöndlun voru efnin greind með gasgreini sem tengdur er massaskynjara (GC/MS) og niðurstöður metnar með Masshunter hugbúnaði með aðstoð staðalefna helstu fíkniefna á markaði. Niðurstöður: Alls fundust 10 mismunandi vímuefni og fjögur mismunandi íblöndunarefni í sprautunum. Metýlfenídat var algengasta vímuefnið en það fannst í 105 sprautum (51,7%). Önnur örvandi efni fundust í um 42% sprauta og ópíóíðar í um þriðjungi sprauta. Engin efni fundust í þremur sprautum. Algengasta íblöndunarefnið var koffín en það fannst í 86 sprautum (42,4%). Rúmlega helmingur sprauta (54,2%) innihélt tvö eða fleiri vímuefni eða íblöndunarefni. Ályktanir: Í Reykjavík er metýlfenídat mun algengara til vímuefnaneyslu í æð samanborið við niðurstöður ESCAPE. Heróín, búprenorfín og katínónar voru með algengustu efnum í ESCAPE en fundust ekki í Reykjavík. Neyslan virðist blönduð, um ...