Þekkingarstjórnun í íslenskri ferðaþjónustu : ,,Við verðum að vanda okkur”

Þekking er ein af mikilvægustu auðlindum fyrirtækja. Þekkingarstjórnun lýtur að því að ekki sé verið að finna í sífellu upp hjólið. Þekkingarstjórnun er nýtt innan fyrirtækja til þess að móta, skrá og miðla þekkingu. Í þessari skýrslu er sagt frá verknámi á Reykjavík Recidence hótel sem staðsett er...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Bergrós Guðbjartsdóttir 1988-
Other Authors: Háskólinn á Hólum
Format: Report
Language:Icelandic
Published: 2020
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/41156
Description
Summary:Þekking er ein af mikilvægustu auðlindum fyrirtækja. Þekkingarstjórnun lýtur að því að ekki sé verið að finna í sífellu upp hjólið. Þekkingarstjórnun er nýtt innan fyrirtækja til þess að móta, skrá og miðla þekkingu. Í þessari skýrslu er sagt frá verknámi á Reykjavík Recidence hótel sem staðsett er í miðborg Reykjavíkur. Verknámið var tvíþætt, annars vegar að kynnast fyrirtækjamenningu hótelsins og þar með nýliðaþjálfun. Hins vegar fólst það í að taka fyrstu skref í að innleiða þekkingarstjórnun hjá Reykjavík Residence hótel með því að móta innri vef; gagnabanka sem heldur utan um öll gögn, upplýsingamiðlun og þekkingu innan fyrirtækisins. Þegar skrif hófust á skýrslu þessari hófst skilgreiningarferlið og leitun að hugtaki yfir miðlægan, gagnvirkan þekkingarbanka. Hugtakið innri vefur varð fyrir valinu vegna þess að hugtakið er að vissu leyti opið líkt og innri vefurinn er og verður. Innri vefurinn er gagnvirkur og brotinn upp í flokka og undirflokka. Hann mun á komandi árum verða leiðarvísir að fjölmörgum verkefnum og verkferlum í öllum deildum hótelsins. Leitast er við að svara eftirfarandi spurningu: Er þekkingarstjórnun mikilvæg til að ná samkeppnisforskoti? Í ljós kom að þekkingarstjórnun er mikilvæg til að ná samkeppisforskoti. Höfundur vonast til að þessi lesning verði skemmtileg og lærdómsrík. Allra helst vona ég að innri vefurinn sem settur hefur verið upp muni gagnast umræddu hóteli vel til framtíðar. Lykilorð: Þekking, þekkingarstjórnun, þjónustugæði, fyrirtækjamenning, ferðaþjónusta. Abstract Knowledge is one of the essential resources in companies. Knowledge management is all about not re-inventing the wheel constantly. Knowledge management is utilized within companies to develop, record and disseminate knowledge. This paper describes vocational training at Reykjavik Recidence Hotel located in the city center of Reykjavik. The vocational training was two-fold, first to get acquainted with the hotel's corporate culture and thus recruit training. Secondly, it involved taking the first steps in ...