Tjarnarhjónin, Bjarni og Erla, eru flutt að Horni ásamt börnum sínum, Árna og Perlu: Rn-/rl-framburður í Austur-Skaftafellssýslu

Þessi ritgerð er lögð fram til B.A.-prófs í íslensku á Hugvísindasviði Háskóla Íslands. Í henni er fjallað um rn-/rl-framburð í Austur-Skaftafellssýslu. Teknar eru saman niðurstöður úr rannsóknum sem voru gerðar um allt land. Niðurstöðurnar eru úr rannsókn Björns Guðfinnssonar, Rannsókn á íslensku n...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Sigríður Björnsdóttir 1967-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2022
Subjects:
Nes
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/40998
Description
Summary:Þessi ritgerð er lögð fram til B.A.-prófs í íslensku á Hugvísindasviði Háskóla Íslands. Í henni er fjallað um rn-/rl-framburð í Austur-Skaftafellssýslu. Teknar eru saman niðurstöður úr rannsóknum sem voru gerðar um allt land. Niðurstöðurnar eru úr rannsókn Björns Guðfinnssonar, Rannsókn á íslensku nútímamáli (RÍN) og rannsóknarverkefninu Málbreytingar í rauntíma í íslensku hljóðkerfi og setningagerð (RAUN). Einnig eru upplýsingar fengnar úr rannsókn sem Ingólfur Pálmason og Þuríður J. Kristjánsdóttir gerðu í Öræfum, Suðursveit og Nesjum í Austur-Skaftafellssýslu. Málhafarnir tóku þátt í tveimur eða þremur rannsóknum. Staðfastir íbúar tóku ýmist þátt í þremur rannsóknum á tæplega 70 ára tímabili eða í tveimur með tæplega 40 ára millibili, en brottfluttir, þ.e. þeir sem fluttu til Reykjavíkur, tóku þátt í tveimur rannsóknum með tæplega 70 ára millibili. Þegar unnið er úr þessum gögnum kemur í ljós að rn-/rl-framburður er nær alveg horfinn og rdn-/rdl-framburður er algengastur. Dn-/dl-framburður, sem var vart greinanlegur í rannsókn Björns Guðfinnssonar, er orðinn algengur hjá fólki. Telja má að konur séu leiðandi í þessum breytingum. Félagslegir þættir eru aðalástæðan fyrir þessum breytingum, s.s. búferlaflutningar úr sveitum í þéttbýli og búferlaflutningar inn á svæðið. This thesis is submitted for a BA degree in Icelandic in the School of Humanities at the University of Iceland. It discusses an rn/rl pronunciation in Austur-Skaftafellssýsla and recapitulates researches that were conducted far and wide in the country. The results are from Björn Guðfinnsson’s research, Rannsókn á íslensku nútímamáli (RÍN) and the research project Málbreytingar í rauntíma í íslensku hljóðkerfi og setningagerð (RAUN). Furthermore there is information gathered from a research conducted by Ingólfur Pálmason and Þuríður J. Kristjánsdóttir in Öræfi, Suðursveit og Nes in Austur-Skaftafellssýsla. The informants participated in two or three researches. Constant inhabitants either participated in three researches during a nearly 70 year ...