Deaf Art; what is it?

Þessi ritgerð er unnin til BA-prófs í táknmálsfræði við Háskóla Íslands. Umfjöllunarefni hennar er hugtakið Döfflist (e. Deaf art) sem á rætur sínar að rekja til Bandaríkjanna þar sem listafélagið De’VIA var stofnað af myndlistakennurum við háskólann Gallaudet. Í ritgerðinni er leitast við að gera g...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Bryn Nóel Francis 1996-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:English
Published: 2022
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/40956
Description
Summary:Þessi ritgerð er unnin til BA-prófs í táknmálsfræði við Háskóla Íslands. Umfjöllunarefni hennar er hugtakið Döfflist (e. Deaf art) sem á rætur sínar að rekja til Bandaríkjanna þar sem listafélagið De’VIA var stofnað af myndlistakennurum við háskólann Gallaudet. Í ritgerðinni er leitast við að gera grein fyrir hugtakinu Döfflist og merkingu þess innan Döff samfélags og menningar. Skoðað er hvernig hugmyndir heyrandi fólks gegn upplifun Döff endurspeglast í myndlist. Litið er til pólitískra aðstæðna og samfélagslegra áhrifa í samhengi við mótun Döfflistar. Einnig er barátta Döff á viðurkenningu táknmáls skoðuð, þá sérstaklega bandarísks táknmáls. Enn fremur er reynt að svara hvað Döfflist felur í sér og hvort hægt sé að flokka þá listahreyfingu. Teknir eru fyrir þrír bandarískir Döff myndlistarmenn, þau Betty G. Miller, Chuck Baird og Susan Dupor og sýnt fram á hvað þeir sem tilheyra sömu jaðarhópum eiga sameiginlegt, ásamt birtingarmynd Döff menningar í verkunum. Niðurstöður leiddu í ljós að þrjú þemu eru möguleg í Döfflist, en líkt og aðrar listhreyfingar þróast hún með tímanum, en ekki er síður mikilvægt að skoða Döfflist og varðveita. Ritgerðin er skrifuð til þess að varpa ljósi á hreyfingu Döfflistar sem hefur ekki náð að festast í almennri myndlistasögu, og í þeirri von að safna og varðveita íslenska Döfflist framvegis. This essay is for a bachelor’s degree in Sign Language Studies, by the University of Iceland. The thesis Deaf Art, what is it? is about so called Deaf art, a term with roots in the United States. Created by American Deaf art professors of Gallaudet, where a group of Deaf artist had unified in the organisation De’VIA. In this essay we seek and identify the terms meaning to Deaf communities and culture. Here looking into its various artforms which mirrors the hearing ideologies in contrast to Deaf experiences. We recognise how socio-political ideas that influences the creation of Deaf art. Also, try to understand the battle of language and equality of Deaf and hard of hearing people. Even so, ...