Yfirferð lyfjalista í heilsugæslu á höfuðborgarsvæðinu 2017-2021

Inngangur: Fjölveikindi eru sífellt að aukast með hækkandi aldri þjóðarinnar og því fylgir aukin tíðni fjöllyfjameðferðar. Ýmislegt getur komið upp í fjöllyfjameðferð, sem dæmi má nefna keðjuverkun í lyfjaávísunum, lélega meðferðarheldni, aukaverkanir og milliverkanir. Rannsóknir sýna að með reglule...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Þórhildur Bergljót Jónasdóttir 1997-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2022
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/40680
Description
Summary:Inngangur: Fjölveikindi eru sífellt að aukast með hækkandi aldri þjóðarinnar og því fylgir aukin tíðni fjöllyfjameðferðar. Ýmislegt getur komið upp í fjöllyfjameðferð, sem dæmi má nefna keðjuverkun í lyfjaávísunum, lélega meðferðarheldni, aukaverkanir og milliverkanir. Rannsóknir sýna að með reglulegri lyfjayfirferð má koma í veg fyrir ýmiss konar vandamál tengd lyfjanotkun. Lyfjayfirferð er gagnleg ólíkum sjúklingum á ólíkum stigum heilbrigðisþjónustu. Markmið rannsóknarinnar var að skoða hópinn sem fékk úrlausnina „lyfjalisti yfirfarinn“ með tilliti til ýmissa þátta og skipt eftir kyni og aldri. Efni og aðferðir: Framkvæmd var lýsandi aftursýn gagnarannsókn. Rannsóknarþýð-ið samanstóð af skjólstæðingum heilsugæslustöðva höfuðborgarsvæðisins 60 ára og eldri sem höfðu fengið úrlausnina „lyfjalisti yfirfarinn“. Gögnin voru fengin úr Sögu-gagnagrunni heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins frá 1. janúar 2017 til 30. september 2021. Gögnunum var lýst með algengistölum og hlutföllum. Niðurstöður: Samtals voru 57.543 lyfjalistar yfirfarnir fyrir 25.146 einstaklinga. Konur voru í meirihluta. Yngstu einstaklingarnir voru 60 ára og sá elsti var 105 ára. Viðtal var algengasta samskiptaformið. Af þeim sem fengu yfirferð var meirihlutinn í fjöllyfjameðferð en fjöldi lyfja jókst með hækkandi aldri. Tæp 20% þýðisins voru í lyfjaskömmtun á einhverjum tímapunkti á rannsóknartímabilinu. Algengustu lyfin voru flest í flokki N sem verkar á taugakerfið en algengasti 4. stigs ATC flokkurinn var prótónupumpuhemlar. Ályktanir: Niðurstöður rannsóknarinnar sýna að skjólstæðingum heilsugæslunnar á höfuðborgarsvæðinu sem fengu yfirferð lyfjalista fjölgaði umtalsvert. Flestar yfirferðir fóru fram í viðtali og stór hluti einstaklinga var í fjöllyfjameðferð. Introduction: Multimorbidity is becoming more prevalent as the nation ages and thus also polypharmacy. Many events can occur in medicine including prescribing cascade, poor medication adherence, adverse events and, drug interactions. Research shows that with regular medication reviews, many ...