Hlutverk forseta á 21. öldinni : hverjar eru valdheimildir forseta skv. stjórnarskrá og hvaða möguleika hefur forseti á að beita þeim?

Í þessari ritgerð eru völd forseta Íslands dregin fram og skýrðar út þær heimildir sem liggja að baki þeim. Litið er til baka í söguna og séð hvernig fyrri forsetar beittu völdum sínum og hvaða augum þeir litu á þau völd. Beitt var lagalegri aðferð, eigindlegri og dogmatískri við söfnum heimilda og...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Hilmar Ingi Jónsson 1975-
Other Authors: Háskólinn á Bifröst
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2020
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/40586
Description
Summary:Í þessari ritgerð eru völd forseta Íslands dregin fram og skýrðar út þær heimildir sem liggja að baki þeim. Litið er til baka í söguna og séð hvernig fyrri forsetar beittu völdum sínum og hvaða augum þeir litu á þau völd. Beitt var lagalegri aðferð, eigindlegri og dogmatískri við söfnum heimilda og úrvinnslu þeirra upplýsinga sem þar komu fram. Sjónarhorn og skilningur fyrri og núverandi forseta, lögspekinga, fræðimanna, þingmanna, ráðherra og almennings gegnir lykilhlutverki. Settar eru fram rökstuddar hugmyndir um möguleika forseta á því að beita þeim völdum sem stjórnarskráin veitir honum. Það er einnig dregið fram með skýrum hætti að valdið kemur frá þjóðinni og það er almenningur sjálfur sem er stjórnarskrárgjafinn. Þetta kom vel í ljós þegar að Hr. Ólafur Ragnar Grímsson þáverandi forseti steig inn í það stjórnskipulega tómarúm sem myndaðist í kringum Icesave málið svokallaða. Hann tók að sér að vera málsvari og talsmaður ríkisvaldsins á alþjóðavettvangi og naut til þess yfirgnæfandi stuðnings landsmanna. Engu skipti þótt þingmenn eða ráðherrar mótmæltu því sem þeir töldu eigin utanríkisstefnu forsetans, hann fór sínu fram þrátt fyrir það. Helstu niðurstöður eru þær að forseti Íslands hefur ríkar valdheimildir samkvæmt stjórnarskrá og hann hefur möguleika á að beita þeim með ýmsum hætti. Við réttar aðstæður á réttum tíma með stuðning almennings hefur réttur einstaklingur í embætti forseta umfangsmikil völd. In this dissertation, the legal powers of the President of Iceland are highlighted and the sources behind them are explained. We look back in history and see how previous presidents exercised their power and how they viewed that power. A legal, qualitative, and dogmatic approach was used for the collection of sources and the processing of the information contained therein. The perspective and understanding of past and present presidents, jurists, scholars, MPs, ministers, and the general public play a key role. Reasoned ideas are put forward about the president's ability to exercise the power ...