Val neytenda á íþróttavöruverslun : hverjir eru helstu áhrifaþættir í vali neytenda á íþróttavöruverslun á Íslandi?

Í þessari rannsókn er neytendahegðun skoðuð út frá þeim áhrifaþáttum sem neytendur leggja mesta áherslu á þegar kemur að því að velja íþróttavöruverslun til að stunda viðskipti við. Gerð var megindleg rannsókn sem spurningakönnun sem lögð var fyrir íslenska neytendur. Markmið rannsóknarinnar var að...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Júlíus Óskar Ólafsson 1999-
Other Authors: Háskólinn á Bifröst
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2021
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/40540
Description
Summary:Í þessari rannsókn er neytendahegðun skoðuð út frá þeim áhrifaþáttum sem neytendur leggja mesta áherslu á þegar kemur að því að velja íþróttavöruverslun til að stunda viðskipti við. Gerð var megindleg rannsókn sem spurningakönnun sem lögð var fyrir íslenska neytendur. Markmið rannsóknarinnar var að sjá hvort munur væri milli ólíkra hópa, hvort munur væri milli þeirra sem búa á landsbyggðinni og á höfuðborgarsvæðinu, hvort munur væri á þessari rannsókn og fyrri rannsóknum og hvort munur væri milli hópa eftir því hvar þeir versla oftast. Rannsóknarspurningin sem lögð var fyrir sem höfð var af leiðarljósi í gegnum allt verkefnið er: Hverjir eru helstu áhrifaþættir í vali neytenda á íþróttavöruverslun á Íslandi? Í fræðilega bakgrunni rannsóknarinnar er fjallað um neytendahegðun, áhrifaþætti neytendahegðunar, kaupákvörðunarferlið, markaðshlutun, markaðsmiðun, staðfærslu, umfjöllun um verslanir, greiningu á íslenska íþróttavörumarkaðnum, ánægju og viðskiptavinatryggð. Fjallað er um fyrri rannsóknir á viðfangsefninu sem þessi rannsókn styðst við þar sem niðurstöður þeirra rannsókna var aðalundirstaðan í spurningakönnuninni sem lögð var fram í þessari rannsókn. Þær niðurstöður sem komu í ljós voru að þeir áhrifaþættir sem skipta mestu máli í vali neytenda á íþróttavöruverslun eru verð, vöruúrval, netverslun til staðar að auki, þjónustustig og vörumerki í verslun. Þessir þættir skipta íslenska neytendur mestu máli og sem þeir nota helst til að velja á milli ólíkra íþróttavöruverslana. In this study, consumer behaviour is examined in terms of the influencing factors that consumers place the greatest emphasis on when it comes to choosing a sporting goods store to do business with. A quantitative study was conducted as a questionnaire that was submitted to Icelandic consumers. The aim of the study was to see if there were differences between different groups, if there were differences between those living in the countryside and in the Greater Reykjavík area, if there were differences between this study and previous ...