Umræðuspil : um Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna : námsefni fyrir mið- og unglingastig grunnskóla

Í aðalnámskrá grunnskóla er gert ráð fyrir að nemendur í 4. bekk hafi fengið fræðslu um Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna. Þetta lokaverkefni samanstendur af námsefni, umræðuspilum, umræðuæfingahefti með kennsluleiðbeiningum um Barnasáttmálann og á að henta nemendum sem hafa lokið grunnfræðslu um Bar...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Áróra Gústafsdóttir 1966-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2022
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/40494
Description
Summary:Í aðalnámskrá grunnskóla er gert ráð fyrir að nemendur í 4. bekk hafi fengið fræðslu um Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna. Þetta lokaverkefni samanstendur af námsefni, umræðuspilum, umræðuæfingahefti með kennsluleiðbeiningum um Barnasáttmálann og á að henta nemendum sem hafa lokið grunnfræðslu um Barnasáttmálann og eru komin á mið- og unglingastig grunnskóla. Á þessum námsstigum eru nemendur farnir að gera sér grein fyrir samhengi hlutanna, og óréttlætinu í heiminum og mikilvægi þess að það séu reglur í samfélagi okkar. Nemendur á mið- og unglingastigi ættu að hafa þroska til að ræða réttindi barna og skoða í sögulegu samhengi af hverju þessi ákvæði hafa verið sett. Nemendur læra að þekkja sögu Barnasáttmálans og af hverju þau ættu ekki að taka honum sem sjálfsögðum hlut. Umræðuæfingaheftið er jafnframt samsafn æfinga sem kennarar geta notað sem hugmyndabanka eða grunn fyrir kennslu um Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna. Spilin eru umræðuspil en rannsóknir hafa sýnt að það er þörf á að auka jafningjamiðaða umræðu í skólum. Námsefnið tekur mið af hæfniviðmiðum samfélagsgreina og íslensku í aðalnámskrá grunnskóla. Námsefnið er kjörið til að æfa mál- og samskiptagreind eins og þessar greindir eru skilgreindar í fjölgreindakenningunni. Kennsluleiðbeiningunum í æfingaheftinu er ætlað að setja námsefnið í samhengi við aðalnámskrá og hvaða færni er ætlað að ná með því að gera æfingarnar. Helstu markmið námsefnisins er að undirbúa nemendur fyrir lýðræðislegar umræður í samfélaginu og þjálfa nemendur í því að mynda sér skoðun og æfa sig í því að beita gagnrýninni hugsun auk þess að koma hugsun sinni á framfæri og færa góð rök fyrir máli sínu. The national curriculum for primary schools in Iceland stipulates that students in grade 4 should receive instruction on the United Nations’ Convention on the Rights of the Child. The teaching materials proposed here, along with the discussion cards and the pamphlet which includes teacher’s notes on discussion exercises, are suited for students who have already received this basic ...