Ábyrg markaðssetning : breyttar áherslur í markaðssetningu áfangastaða í Fljótsdal og nágrenni

Áskoranir ferðaþjónustu á Íslandi í gegnum árin hafa verið fjölmargar og ein af þeim er ójöfn dreifing ferðamanna um landið. Fljótsdalur á Héraði hefur að geyma einn vinsælasta áfangastað ferðamanna á Austurlandi, Hengifoss, þar sem fjöldi ferðamanna eykst ár frá ári. Þessi fjöldi ferðamanna virðist...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Helga Eyjólfsdóttir 1987-
Other Authors: Háskólinn á Hólum
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2020
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/40432
Description
Summary:Áskoranir ferðaþjónustu á Íslandi í gegnum árin hafa verið fjölmargar og ein af þeim er ójöfn dreifing ferðamanna um landið. Fljótsdalur á Héraði hefur að geyma einn vinsælasta áfangastað ferðamanna á Austurlandi, Hengifoss, þar sem fjöldi ferðamanna eykst ár frá ári. Þessi fjöldi ferðamanna virðist þó ekki endurspegla gestakomur annarra áfangastaða ferðamanna í Fljótsdal. Í þessari ritgerð er horft til markaðssetningar þeirra áfangastaða sem staðsettir eru í Fljótsdal og hvernig henni er háttað. Rannsóknin er megindleg þar sem tilgáta er sett fram um að markaðssetning áfangastaða í Fljótsdal skilar sér ekki í fjölgun ferðamanna á öðrum áfangastöðum en Hengifossi og þar af leiðandi þekkja ferðamenn sem stoppa þar, lítið til annarra áfangastaða á svæðinu. Gagnaöflun var gerð með spurningakönnun þar sem þýðið er ferðamenn við Hengifoss í júlí og ágúst 2020. Niðurstöður leiddu í ljós að tilgátan er að hluta til rétt, þ.e. erlendir ferðamenn þekkja lítið til annarra áfangastaða í Fljótsdal. Því er sett fram sú tillaga að breyta þurfi áherslum í markaðssetningunni, t.d. á þá leið að markaðssetja sérstaka ferðaleið sem liggur báðu megin Lagarfljóts og inn í Fljótsdal. Slíkur hringur getur fjölgað áfangastöðum, aukið þar með fjölbreytni fyrir ferðamenn og aukið stuðning á milli hagsmunaaðila í ferðaþjónustu. Lykilorð: ferðaþjónusta í dreifbýli, markaðsetning áfangastaða, ábyrg markaðssetning, ferðamannaleiðir, fjöl-áfangastaða líkan Challenges for the Icelandic tourism industry have through the years been numerous, and one of them is the uneven distribution of tourists over the country. Hengifoss in Fljótsdalur is one of the most popular tourist destinations in east Iceland and visitors’ numbers increase every year. Although, this large number of visitors does not seem to reflect in visitors’ numbers in other tourist destinations in Fljótsdalur. In this thesis the marketing of destinations located in Fljótsdalur is examined. The research method is quantitative and a hypothesis put forward that states that the ...