Staðartengsl og bjórferðamennska: Tengsl og áhrif staða á íslensk handverksbrugghús

Á síðustu árum hefur verið mikil gróska í heimi handverksbrugghúsa. Á Íslandi hefur handverksbrugghúsum fjölgað mjög mikið og eru þau staðsett víðs vegar um landið. Ein grein ferðamennsku, sem er tiltölulega ný af nálinni, hefur sprottið upp í kjölfar fjölgunar handverksbrugghúsa. Hér er um að ræða...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Helga Hannesdóttir 1994-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2022
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/40402
Description
Summary:Á síðustu árum hefur verið mikil gróska í heimi handverksbrugghúsa. Á Íslandi hefur handverksbrugghúsum fjölgað mjög mikið og eru þau staðsett víðs vegar um landið. Ein grein ferðamennsku, sem er tiltölulega ný af nálinni, hefur sprottið upp í kjölfar fjölgunar handverksbrugghúsa. Hér er um að ræða bjórferðamennsku. Markmið bjórferðamanna er að ferðast í þeim tilgangi að kynna sér staðbundin brugghús og afurðir þeirra. Sýnt hefur verið fram á að framsetning ímynda handverksbrugghúsa er undir töluverðum staðaráhrifum. Staðir eru sífellt að breytast á bæði huglægan og hlutlægan máta í gegnum sögu þeirra, menningu, félagsleg samskipti og veraldlega formgerð þeirra. Staðir eru því aldrei fullmótaðir heldur eru þeir sífellt verðandi. Í gegnum ferðamennsku og áhrifum hennar á staði sjáum við þennan mikla hreyfanleika ofur-nútímans. Markmið rannsóknarinnar er að skoða hinar ýmsu birtingarmyndir staða og hreyfanleika þeirra í ímynd og starfsemi íslenskra handverksbrugghúsa. Gögnum var aflað með eigindlegum aðferðum. Tekin voru fimm hálfstöðluð viðtöl við eigendur og starfsmenn íslenskra handverksbrugghúsa víðs vegar um landið. Niðurstöður rannsóknarinnar varpa ljósi á hvernig staðir, og hreyfanleiki þeirra, hefur margvísleg áhrif á mótun og starfsemi brugghúsanna. In the past few years there has been a boom in the world of micro-breweries. In Iceland, many new micro-breweries have opened up all over the country. This renewed interest in micro-brewing has also sparked a relatively new form of tourism called beer tourism. The main goal of a beer tourist is to familiarize themselves with local micro-breweries and their production. The identity of micro-breweries has been known to be influenced by their connection to one or more local places. Places are constantly changing in both subjective and objective ways through their local history, culture, social relations, and material structures. They are thus highly dynamic and always in the process of becoming. Through todays hyper-modernity, the mobility of place can be seen ...