Loftslagsbreytingar í ljósi mannfræðinnar: Rannsóknir á norðurheimskautinu

Nútímalífstíll mannsins hefur markað veruleg kaflaskil í samskiptum hans við umhverfi sitt en miklar og hraðar breytingar hafa orðið á loftslagi jarðar á síðustu áratugum sem eru að stórum hluta af mannavöldum og má rekja til aukins styrks gróðurhúsaloftegunda í andrúmsloftinu. Þessar breytingar eru...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Sandra María Diya Jónsdóttir 1990-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2022
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/40245
Description
Summary:Nútímalífstíll mannsins hefur markað veruleg kaflaskil í samskiptum hans við umhverfi sitt en miklar og hraðar breytingar hafa orðið á loftslagi jarðar á síðustu áratugum sem eru að stórum hluta af mannavöldum og má rekja til aukins styrks gróðurhúsaloftegunda í andrúmsloftinu. Þessar breytingar eru ein af aðalhættunum sem maðurinn, aðrar lífverur og vistkerfi á jörðinni standa frammi fyrir í dag. Í þessari ritgerð verður fjallað um loftslagsbreytingar og aðkomu mannfræðinnar að loftslagsmálum. Markmið þessarar umfjöllunar er að skoða hvað mannfræðin hefur fram að færa og hverjir eru styrkleikar mannfræðinar þegar kemur að vandamálum tengdum loftslagsbreytingum. Í ritgerðinni verður lögð áhersla á að skoða hver áhrif loftslagsbreytinga og hlýnununar jarðar eru á norðurheimskautsvæðið en það hefur hlýnað meira þar en á nokkru öðru svæði í heiminum. Fjallað verður um mannfræðirannsóknir í samfélagi tveggja viðkvæmra frumbyggjahópa á norðurheimskautssvæðinu. Annars vegar rannsóknir Susan Crate í samfélagi Viliui Sakha í Norðaustur-Síberíu og hins vegar rannsóknir Kirsten Hastrup í samfélagi Inughuit á Norðvestur-Grænlandi. Ljóst er að það er brýnt að grípa til herta aðgerða til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda og bæta samskipti okkar við umhverfið. Mannfræðingar búa yfir mikilli sérþekkingu á margbreytileika menningar og samfélaga sem geta komið að góðum notum í aðgerðum tengdum loftslagsmálum og geta þeir komið með mikilvægt framlag til að skilja þann gríðarlega stóra hnattræna vanda sem við stöndum frammi fyrir í dag. Þessi ritgerð ætti að gefa lesenda góða hugmynd um það hvernig mannfræðin getur verið nytsamleg í baráttuni við skaðleg áhrif loftslagsbreytinga. Modern human lifestyle has marked a significant turning point in man's relationship with his environment, there have been major and rapid changes in the earth's climate in recent decades, which are largely influenced by man and can be attributed to increased concentration of greenhouse gases in the atmosphere. These changes are the biggest threat ...