Depression, anxiety and stress among university students with ADHD symptoms

Markmið þessarar rannsóknar var að kanna tengsl á milli þunglyndis, kvíða og streitu og ADHD einkenna meðal háskólanema fyrir alla undirflokka ADHD. ADHD einkenni voru mæld með ADHD-RS sjálfsmatkvarðanum og einkenni þunglyndis voru mæld með PHQ-9 kvarðanum. Einkenni streitu voru mæld með PSS-10 kvar...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Elín Guðrún Þorleifsdóttir 1994-
Other Authors: Háskólinn í Reykjavík
Format: Thesis
Language:English
Published: 2021
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/40213
Description
Summary:Markmið þessarar rannsóknar var að kanna tengsl á milli þunglyndis, kvíða og streitu og ADHD einkenna meðal háskólanema fyrir alla undirflokka ADHD. ADHD einkenni voru mæld með ADHD-RS sjálfsmatkvarðanum og einkenni þunglyndis voru mæld með PHQ-9 kvarðanum. Einkenni streitu voru mæld með PSS-10 kvarðanum og einkenni kvíða með GAD-7 kvarðanum. Rannsóknarspurningar voru (1) Er kynjamunur meðal háskólanema sem skora yfir greiningarviðmiðum á ADHD kvarðanum og þeirra sem skora undir greiningarviðmiðum? (2) Finna háskólanemar sem skora yfir greiningarviðmiðum fyrir hverja undirtegund ADHD, meira fyrir einkennum þunglyndis, kvíða, og streitu, en þeir nemendur sem ná ekki greiningarviðmiðum? (3) Hafa allar undirtegundir ADHD jafn sterk tengsl við þunglyndi, kvíða og streitu meðal háskólanema? Rannsóknin var hluti af stærri þversniðsrannsókn sem var framkvæmd með rafrænni spurningakönnun sem nemendur Háskólans í Reykjavík fengu senda í tölvupósti. Í þessari rannsókn var notast við svör 509 nemenda á aldrinum 18-49 ára. Úrtakið var valið eftir hentugleika. Niðurstöður sýna jákvæð línuleg tengsl á milli fjölda einkenna fyrir hvern undirflokk ADHD og þunglyndis, kvíða og streitu meðal háskólanema. Hingað til hafa fáar rannsóknir kannað áhrif ADHD einkenna á kvíða, þunglyndi og streitu meðal háskólanema með tilliti til undirtegunda ADHD og er þessi rannsókn sú fyrsta sinnar tegundar á Íslandi. Lykilorð: ADHD, þunglyndi, kvíði, streita, lyndiseinkenni, háskólanemar The aim of this study was to explore the relationship between mood symptoms (depression, anxiety, and stress) and symptoms above criteria value for the ADHD subtypes (ADHD-I, ADHD-H and ADHD-C) among university students. The ADHD Rating Scale was used to measure self-reported ADHD symptoms and PHQ-9 was used to measure depression. To measure stress, PSS-10 was used, and GAD-7 was used to measure anxiety. The research questions posed in the study were the following: (1) Is there a gender-related difference among university students with symptoms above criteria ...