Skilgreining á lifrarprótínmengi í bleikju : (salvelinus alpinus)

Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri Frá örófi alda hefur mannkynið nýtt auðlindir hafsins. Á seinni árum hefur fiskeldi vaxið mjög í hlutfalli við veiðar úr villtum stofnum. Fiskeldi er talið nauðsynlegt vegna samdráttar í veiðum samhliða aukinni neyslu. Helsti ókostur fis...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Stefanía Steinsdóttir
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2006
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/402
Description
Summary:Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri Frá örófi alda hefur mannkynið nýtt auðlindir hafsins. Á seinni árum hefur fiskeldi vaxið mjög í hlutfalli við veiðar úr villtum stofnum. Fiskeldi er talið nauðsynlegt vegna samdráttar í veiðum samhliða aukinni neyslu. Helsti ókostur fiskeldis er hversu hár fóðurkostnaðurinn er í heildar framleiðslukostnaður á eldisfiski og á það sérstaklega við um prótínhluta fóðursins. Fóðurkostnaður í bleikjueldi er sérstaklega hár. Nauðsynlegt er að lækka þennan kostnaðarlið með m.a. útskiptingu á fiskiprótínum fyrir jurtaprótín og þar með minnka slátrun á villtum fiski til fóðurgerðar. Ýmsum aðferðum er beitt við rannsóknir á tilraunafóðrun í eldi,. Ein aðferð, sem reynst hefur vel, er prótínmengjagreining sem metur breytingar á prótínum í lifur fisks, fyrir og eftir tilraunafóðrun., Í verkefni þessu var leitast við að setja upp aðferð til tvívíðrar prótínmengjagreiningar á lifrarprótínmengi bleikju. Ritsmíð þessi lýsir þessari viðleitni, ak kynningar á fiskeldi, bleikjueldi, fóðrun og prótínmengjagreiningu. Prótínmengjarannsóknir hafa verið stundaðar og eru miklir möguleikar í þeim efnum. Þörf er á ódýrara fóðri í bleikjueldi og mögulegt er að finna hentuga prótínblöndu með prótínmengjagreiningu. Í þessu verkefni var stefnt að því að setja upp tæki og aðferðir prótínmengjagreiningar við HA svo hægt verði í framtíðinni að flytja prótín úr lifur á gel til greiningar á staðlaðan og fljótlegan hátt. Í verkefninu var hafist handa við aðferðaþróun á þessu sviði, en mikið verk er enn óunnið, enda er verkefnið aðeins hluti af stærra og umfangsmeira verkefni. Lykilorð: Fiskeldi, bleikja, fóðrun, jurtafæða, prótínmengjagreining.