Summary: | Í þessu lokaverkefni er sett fram krafa um að hanna tveggja hæða einbýlishús með innbyggðum bílskúr. Neðri hæð steypt og efri timbur. Skilyrði er að endingartími sé góður við val á byggingar efni, eða 35 ár. Seiðakvísl 20 í Reykjavík var valið fyrir þetta verkefni og gerðar á því talsverðar breytingar frá upprunalegri hönnun. Teiknisett inniheldur: Uppdráttaskrá, aðaluppdrætti, skráningartöflu, verkteikningar, burðarþolsuppdrætti og lagnateikningar. Skýrsla inniheldur: Verklýsingar, kostnaðaráætlun, burðarþolsútreikninga, lagnaútreikninga, framkvæmdaáætlun, byggingarumsókn og gátlista byggingarfulltrúa.
|