Summary: | Við Súlunes 15 á Arnarnesinu í Garðabæ stendur eitt af fallegri íbúðarhúsum Suðurlands, og þó víðar væri leitað, sem Kjartan heitinn Sveinsson byggingartæknifræðingur hannaði á sínum afkastamikla ferli. Húsnæði þetta inniheldur flesta þá byggingarhluta sem áhugavert er fyrir burðarþolshönnuð að reikna, svo sem súlur, svalir, milligólf og valmaþak, svo fátt sé nefnt. Hönnunarverkefni þetta felst í því að burðarþolshanna áðurnefnda byggingarhluta eftir þeim aðferðum sem kenndar eru í byggingartæknifræði við Háskólann í Reykjavík. Ekki voru allar teikningar aðgengilegar og því varð hluti verkefnisins að endurgera byggingarhluta í þeirri mynd sem hugnaðist höfundi. Í fyrri hlutanum er farið í gegnum þær forsendur sem hannað er eftir og niðurstöður útreikninga síðan kynntar. Í seinni hlutanum eru allir útreikningar ásamt útskýringum á þeim.
|