"Þarna er ÉG": Upplifun og reynsla kvenna af ADHD greiningu á fullorðinsárum

Meginmarkmið rannsóknarinnar var að skoða upplifun og reynslu kvenna sem fá ADHD-greiningu á fullorðinsárum. Áhersla var lögð á að varpa ljósi á áhrif ógreinds athyglisbrests með/og án ofvirkni og hvatvísi á líf kvenna. Fjölmargar rannsóknir hafa verið gerðar á hinum ýmsu þáttum ADHD en sjónum hefur...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Sigrún Magnea Gunnarsdóttir 1973-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2021
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/40146
Description
Summary:Meginmarkmið rannsóknarinnar var að skoða upplifun og reynslu kvenna sem fá ADHD-greiningu á fullorðinsárum. Áhersla var lögð á að varpa ljósi á áhrif ógreinds athyglisbrests með/og án ofvirkni og hvatvísi á líf kvenna. Fjölmargar rannsóknir hafa verið gerðar á hinum ýmsu þáttum ADHD en sjónum hefur hingað til lítið verið beint að konum sem ganga gegnum lífið með ógreint ADHD. Því er markmið rannsóknarinnar að öðlast innsýn í þær margvíslegu áskoranir sem konur þurfa að glíma við með það fyrir augum að auka þekkingu og skilning á röskuninni. Með aukinni vitund samfélagsins aukast líkurnar á snemmbærri greiningu og á þann hátt má betur koma til móts við þarfir kvennanna. Með tilliti til markmiðs rannsóknar var notast við eigindlega viðtalsrannsókn en tekin voru viðtöl við níu konur á aldrinum 44-73 ára, sem áttu það sameiginlegt að hafa greinst með ADHD á fullorðinsárum. Helstu niðurstöður rannsóknarinnar leiddu í ljós margvíslegar áskoranir í daglegu lífi kvennanna. Einnig leiddu niðurstöðurnar í ljós mikilvægi greiningar við að auka lífsgæði þeirra. Frekari rannsókna er þörf á upplifun og reynslu kvenna sem greinast með ADHD á fullorðinsaldri. Með því að rannsaka röskunina út frá hinum margvíslegu þáttum hennar vonast höfundur til að enn betur verði hægt að styðja við konur með ADHD. Lykilorð: Konur, fullorðinsár, ADHD, áskoranir, greiningarferli This study is a final assignment towards an MA degree in social work at the University of Iceland. The main objective of the study was to explore the experiences of women who are diagnosed with ADHD in adulthood. An emphasis was placed og highlighting the effects of undiagnosed ADHD with/and without hyperactivity and impulsivity on women’s lives. Numerous studies have been conducted on the various aspects of ADHD. However, little attention has been paid to women who go through life with undiagnosed ADHD. Therefore, the aim of this study is to gain insight into the various challenges that women have to cope with in order to increase knowledge and understanding of the ...