Útskipting fiskimjöls í fóður fyrir bleikju : (salvelinus alpinus)

Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri Tilgangur og markmið þessa verkefnis var að kanna hvort minnka megi hlutfall fiskimjöls í fóðri fyrir eldisbleikju (Salvelinus alpinus) til móts við próteingjafa af plöntuuppruna. Notkun plöntupróteina sem próteingjafa í fóður til fiskel...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Bjarni Jónasson
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2006
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/401
Description
Summary:Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri Tilgangur og markmið þessa verkefnis var að kanna hvort minnka megi hlutfall fiskimjöls í fóðri fyrir eldisbleikju (Salvelinus alpinus) til móts við próteingjafa af plöntuuppruna. Notkun plöntupróteina sem próteingjafa í fóður til fiskeldis hefur verið rannsakað í mörg ár vegna takmarkaðs magns af fiskimjöli í heiminum, mikillar eftirspurnar og neikvæðrar verðþróunar á mörkuðum. Notkun plöntupróteina í stað fiskimjöls hefði mjög jákvæð áhrif á arðsemi fyrirtækja sem stunda bleikjueldi þar sem fóðurkostnaður er yfirleitt um helmingur af framleiðslukostnaði í eldi bleikju og annara laxfiska. Valdar voru tvær tegundir af jurtapróteinum í fóður fyrir bleikju til samanburðar við hefðbundið fóður. Þurrfóður var útbúið með mismunandi hlutföllum af plöntupróteini og fiskar fóðraðir í 4 mánuði. Vöxtur, þrif, meltanleiki og fóðurstuðull var rannsakað í samanburði við hópa sem fengu hefðbundið bleikjufóður (fiskimjöl sem aðal próteingjafi). Niðurstöðurnar benda til þess að repjumjöl geti verið hentugur próteingjafi í fóður fyrir eldisbleikju. Góður vöxtur og góð fóðurnýting náðust með fóðri sem innihélt 28% repjumjöl. Lykilorð: Fiskeldi; Bleikja; Fiskimjöl; Vöxtur; Meltanleiki.