Jóga og núvitund í leikskóla : rafrænn jóga- og núvitundar gagnabanki fyrir leikskólakennara

Ritgerðin er 12 eininga lokaverkefni til B.Ed.-prófs í kennarafræðum við Háskólann á Akureyri. Höfundi þótti vanta aukinn aðgang að upplýsingum um jóga- og núvitund í leikskóla og því var ákveðið að útbúa rafrænan jóga- og núvitundar gagnabanka fyrir leikskólakennara. Gagnabankinn á að nýtast öllu s...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Hildur Rún Róbertsdóttir 1995-
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2021
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/40041
Description
Summary:Ritgerðin er 12 eininga lokaverkefni til B.Ed.-prófs í kennarafræðum við Háskólann á Akureyri. Höfundi þótti vanta aukinn aðgang að upplýsingum um jóga- og núvitund í leikskóla og því var ákveðið að útbúa rafrænan jóga- og núvitundar gagnabanka fyrir leikskólakennara. Gagnabankinn á að nýtast öllu starfsfólki leikskóla bæði í kennslu sem og í undirbúningstíma og inniheldur hann allskyns upplýsingar um jóga og núvitund, handteiknuð jógaspjöld, núvitundaræfingar og matsblað fyrir leikskólakennara. Það er í þeirra hlutverki að meta nám og líðan barna í leikskólum. Þessi ritgerð er fræðilegur bakgrunnur gagnabankans og er megin tilgangur hennar að varpa ljósi á ávinning jóga- og núvitundariðkun barna. Ákveðið var að fjalla bæði um jóga- og núvitund í verkefninu vegna þess hversu vel það fellur að hvor öðru. Jógastund inniheldur núvitund og að iðka núvitund getur falið í sér jóga. Í ritgerðinni verður fjallað um jóga sem hreyfingu og hvíldarstund fyrir börn, ávinning jóga en hann getur verið margvíslegur og að lokum jógastundina sjálfa en hún inniheldur ekki einungis jógastöður heldur einnig slökun, hugleiðslu og möntrur. Eins verður fjallað um núvitund, hvað felst í þeirri iðju, að vera í „núinu“ og hvernig núvitund er að skipa sér sess í íslensku leikskólastarfi. Í seinni hluta verkefnisins verður fjallað nánar um innihald gagnabankans, kveikju, uppsetningu og kennslufræðilega nálgun. Unnið verður út frá því að svara eftirfarandi spurningu: Hver er ávinningur jóga- og núvitundariðkun barna í leikskóla? This thesis is submitted for a B.Ed.- degree at the Faculty of Education in the University of Akureyri. The author thought important that Icelandic kindergarten teachers would have access to more information about yoga and mindfulness in early childhood education. For that reason, it was decided to make a yoga- and mindfulness database for kindergarten teachers. The database is supposed to benefit all kindergarten staff both in direct teaching with the children and to gather information while preparing teaching. ...