Fjölmenningarlegar kennsluaðferðir og námsumhverfi á 21.öld : handbók fyrir grunn- og framhaldsskólakennara

Verkið sem hér um ræðir er meistaraprófsverkefni til fullnaðar M.Ed.-gráðu á Menntavísindasviði Háskóla Íslands. Verkefnið er handbók sem ber heitið Fjölmenningarlegar kennsluaðferðir og námsumhverfi á 21. öld. Handbók fyrir grunn- og framhaldsskólakennara. Handbókinni fylgir fræðileg greinargerð. T...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Ingibjörg Kristín Ferdinandsdóttir
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2009
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/4003
Description
Summary:Verkið sem hér um ræðir er meistaraprófsverkefni til fullnaðar M.Ed.-gráðu á Menntavísindasviði Háskóla Íslands. Verkefnið er handbók sem ber heitið Fjölmenningarlegar kennsluaðferðir og námsumhverfi á 21. öld. Handbók fyrir grunn- og framhaldsskólakennara. Handbókinni fylgir fræðileg greinargerð. Tilgangur og markmið verksins er að veita grunn- og framhaldsskólakennurum, sem starfa með fjölbreyttum nemendahópum, upplýsingar og stuðning varðandi fjölmenningarlega menntun, kennsluhætti og námsumhverfi. Handbókin var samin með hliðsjón af eftirfarandi spurningum: 1. Hvers konar kennsluaðferðir henta helst fjölmenningarlegum nemendahópum og hvernig er hægt að tengja þess háttar kennsluhætti við hugmyndafræði fjölmenningarlegrar menntunar? 2. Hvers konar námsumhverfi gagnast helst fjölmenningarlegum nemendahópum? Í handbókinni er gerð grein fyrir því hvernig tekið er á málefnum fjölmenningarlegra nemendahópa í grunn- og framhaldsskólalögum og í aðalnámskrám beggja skólastiga. Þá er fræðileg umfjöllun um fjölmenningarlega menntun og fjölbreytta kennsluhætti og settar fram hagnýtar hugmyndir til handa kennurum. Í lok handbókarinnar miðlar kennari í fjölmenningarlegu skólasamfélagi af reynslu sinni og veitir ýmis hagnýt ráð. Greinargerð þessi byggist á kennslufræðilegum heimildum, rannsóknum á sviði fjölmenningarlegrar menntunar og reynslu tveggja kennara af fjölmenningarlegum kennsluháttum og námsumhverfi í tveimur stærstu fjölmenningarskólunum í Reykjavík, Austurbæjarskóla og Fellaskóla.