Var morðinginn kominn í leitirnar? Áhrif fjölmiðlaumfjöllunar á þróun sakamála.

Ritgerð þessi er lögð fram til BA-prófs í fjölmiðlafræði á Hug- og félagsvísindasviði við Háskólann á Akureyri. Viðfangsefni ritgerðarinnar er að varpa ljósi á hvaða áhrif fjölmiðlar geta haft á rannsókn og meðferð sakamála. Hvort ólík nálgun fjölmiðla geti haft ólík áhrif á framgang þeirra. Í forgr...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Hákon Svavarsson 1995-
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2021
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/40026
Description
Summary:Ritgerð þessi er lögð fram til BA-prófs í fjölmiðlafræði á Hug- og félagsvísindasviði við Háskólann á Akureyri. Viðfangsefni ritgerðarinnar er að varpa ljósi á hvaða áhrif fjölmiðlar geta haft á rannsókn og meðferð sakamála. Hvort ólík nálgun fjölmiðla geti haft ólík áhrif á framgang þeirra. Í forgrunni rannsóknarinnar er mál Gunnars Tryggvasonar sem myrtur var í leigubifreið sinni árið 1968. Ný vísbending sem kom fram í fjölmiðlum er höfð til hliðsjónar. Það er gert til að kanna hvernig fjallað var um vísbendinguna í ólíkum miðlum. Tilviksrannsókn var notuð og aðal áherslan lögð á upprifjun málsins og þá nýju vísbendingu sem kom fram í fréttaskýringarþættinum Fréttaaukinn á Ríkisútvarpinu (RÚV) og hlaðvarpsþættinum Sönn íslensk sakamál í umsjón Sigursteins Mássonar. Skoðað var efni úr þessum tilteknu þáttum, ásamt dagblaðsgreinum um sakamálið til að draga upp stutta samantekt. Tilgangurinn með því var að kanna þá þætti sem lagðir voru til grundvallar málinu; fréttamat, vinnulag og hlutverk blaðamanna, nöfn og myndbirtingar og lýsingar á verknaðinum. Byggt var á þessum niðurstöðum og hvernig miðlar nálguðust málin með ólíkum hætti. Þetta er gert til að skýra hvernig reglur þeir setja sér og hvernig eðli miðlanna er. Hvort um sé að ræða RÚV, einkamiðla eða sjálfstæða blaðamenn. Mikilvægt að hafa það hugfast að þegar fjallað er um sakamál þarf að vanda til verka svo vinnan skili árangri og þeir sem tengjast málinu verði ekki fyrir skaða vegna umfjöllunarinnar. Ef vel er á málum haldið getur vönduð umfjöllun átt sinn þátt í því að hreyfing komist á málið og hjálpað til við mögulega lausn þess. This thesis is submitted as part of Baccalaureate Aritum-degree in Media Studies at University of Akureyri. The study aims to explore how the media can influence research and handling of criminal cases and whether different approaches of the media can have different effects on their progress. The main objective of the thesis is an Icelandic murder case from 1968, when a taxi driver, Gunnar Tryggvason was murdered in his ...