Landmótun Bægisárdals, Lambárdals og Húsárdals

Svæði á austanverðum Tröllaskaga var rannsakað sumarið 2019 og laus jarðlög kortlögð. Rannsóknarsvæðið samanstendur af þremur dölum, það eru Bægisárdalur, Lambárdalur og Húsárdalur, U-laga dalir með skálarjöklum í botni. Dalirnir einkennast af landmótun jökla, rennandi vatns og ofanflóða. Svæðið var...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Karl Stefánsson 1995-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2021
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/39965
Description
Summary:Svæði á austanverðum Tröllaskaga var rannsakað sumarið 2019 og laus jarðlög kortlögð. Rannsóknarsvæðið samanstendur af þremur dölum, það eru Bægisárdalur, Lambárdalur og Húsárdalur, U-laga dalir með skálarjöklum í botni. Dalirnir einkennast af landmótun jökla, rennandi vatns og ofanflóða. Svæðið var kortlagt síðla sumars þegar mestur vetrarsnjór var farinn og unnið var kort yfir laus jarðlög. Kortið var útbúið út frá vettvangsathugunum, loftmyndum og hæðargögnum, og landformum dalanna og mótun þeirra er lýst á grundvelli þeirrar yfirborðskortlaginu. Á rannsóknarsvæðinu eru ummerki eftir hörfun skriðjökuls úr Bægisárdal í lok síðasta jökulskeiðs. Seinna á nútíma mynduðust skálajöklar í botnum og drögum dalanna og hafa þeir síðan þá mótað dalina. Rannsóknarsvæðið einkennist einnig af berghlaupum sem féllu eftir að skriðjöklar höfðu hörfaði úr dölunum. Munur er á milli berghlaupa eftir staðsetningu í dölunum og virðast berghlaupin hafa fallið út frá veikum lögum í bergstaflanum, þar sem súr millilög liggja á milli basaltlaga. Berghlaup í lambárdal eru stór en hlupu stutt og liggja í dalshlíðinni. Berghlaupin í Bægisárdal og við Húsárdal eru misstór en höfðu nóg rími og dreifðu úr sér eins og mögulega var hægt. An area, comprising three valleys Bægisárdalur, Húsárdalur and Lambárdalur in Hörgárdalur in eastern parts of the Tröllaskagi peninsula in Central North Iceland, was investigated in 2019 and a geomorphological map of the area was produced. The valleys are typically U-shaped glacially shaped valleys and at present each of them carries a cirque glacier. The morphological development of the area is mainly due to erosional processes of glaciers, running water and mass movement. The field work took place in late summer of 2019 when the winter snow had melted. Field observations, interpretation of aerial photographs and digital elevation models were used to construct the geomorphological map of the area. Geomorphological features are described and their origin discussed. Most moraines and other glacial landforms ...