Áhrif reykingar á gæði og val neytenda á reyktum laxi

Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri Lykilorð: Lax, reyktur lax, skynmat, örverumælingar, val neytenda. Verkefni þetta fjallar í megindráttum um reyktan lax og hvað hefur áhrif á val neytandansþegar hann velur sér reyktan lax. Teknir voru fyrir þrír framleiðendur á norðurla...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Atli Þór Ragnarsson
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2006
Subjects:
Lax
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/399
Description
Summary:Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri Lykilorð: Lax, reyktur lax, skynmat, örverumælingar, val neytenda. Verkefni þetta fjallar í megindráttum um reyktan lax og hvað hefur áhrif á val neytandansþegar hann velur sér reyktan lax. Teknir voru fyrir þrír framleiðendur á norðurlandi þar sem ein tiltekin verslun var skoðuð nánar. Lagðir voru fyrir spurningalistar fyrir viðskiptavini og þeir spurðir hvaða vöru frá hvaða framleiðanda þeir myndu velja. Ásamt því var reynt að finna mælanlegan mun milli framleiðenda bæði með örverumælingum og skynmati. Lítill munur var á vali neytenda þegar engar kvaðir voru settar á valið, það er að segja verðið væri hið sama á þeim öllum. Hins vegar ef skoðaðar eru sölutölur hefur verðið úrslita áhrif. Vara frá Fjörfisk er seld mest eða um 60% af sölunni. Hins vegar ef skoðaðar eru viðhorf viðskiptavina Nettó, þá voru um 32% sem vildu kaupa fiskinn frá Fjörfisk. Ef skoðaðar eru kynjaskiptar tölur varðandi val neytenda kemur í ljós að konur vildu helst kaupa þá tegund sem mest var keypt af í þessari tilteknu verslun sem skoðuð var. Þegar niðurstöður úr örverumælingunum og skynmatinu eru skoðaðar er ekki að sjá að slíkir þættir hafi mikil áhrif á val neytandans. Mismunandi reykingaraðferð virtist einungis hafa áhrif á val milli kynjanna.