Þrávirk lífræn efni í sjávarfangi

Lykilorð: Bendi PCB-efni, þrávirk lífræn efni, gasgreinir, fiskiolíur. Verkefni þetta fjallar um þrávirk lífræn efni í sjávarfangi og mælingar á þeim. Markmið verkefnisins var að setja upp og þróa aðferð til að mæla svokölluð bendi PCB-efni sem eru hluti af þrávirkum lífrænum efnum í sjávarfangi. Ve...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Birgir Már Harðarson
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2006
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/398
Description
Summary:Lykilorð: Bendi PCB-efni, þrávirk lífræn efni, gasgreinir, fiskiolíur. Verkefni þetta fjallar um þrávirk lífræn efni í sjávarfangi og mælingar á þeim. Markmið verkefnisins var að setja upp og þróa aðferð til að mæla svokölluð bendi PCB-efni sem eru hluti af þrávirkum lífrænum efnum í sjávarfangi. Verið er að byggja upp sérfræðiþekkingu og aðstöðu til rannsókna og mælinga á þrávirkum lífrænum efnum hjá Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins á Akureyri. Þetta verkefni er liður í þeirri uppbyggingu. Settur var upp gasgreinir, svokallað GC-ECD tæki. Með hjálp staðla voru aðgerðirnar síðan stilltar af svo hægt var að greina bendi PCB-efnin. Til að meta aðferðina voru notaðar fiskiolíur sem innihalda þekkt magn af bendi PCB-efnum, mældar af vottaðri rannsóknastofu í Þýskalandi. Niðurstöður verkefnisins benda til þess að hægt sé að setja upp aðferð til að mæla bendi PCB-efni í fiskiolíum með því að nota rástíma og heildar toppa. Hinsvegar kom í ljós að mælingar á magni bendi PCB-efna í fiskiolíum voru yfirleitt hærri en niðurstöðurnar fyrir sömu sýni mældum í Þýskalandi. Nauðsynlegt er að þróa aðferð til enn frekari hreinsun á sýnum.