Þjónustugæði og lífsstílsbreytingar. Þjónustukönnun innan Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins

Meginmarkmið rannsóknarinnar er að kanna hvort þjónustugæði (service quality) hafi áhrif á árangur forvarnarstarfs heilsugæslulækna og hjúkrunarfræðinga hvað varðar lífsstílssjúkdóma skjólstæðinga sinna. Stuðst er við aðlagaða útgáfu af mælitækinu SERVQUAL, sem gerir ráð fyrir fimm gæðavíddum; áreið...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Brynja Laxdal 1961-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2009
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/3976
Description
Summary:Meginmarkmið rannsóknarinnar er að kanna hvort þjónustugæði (service quality) hafi áhrif á árangur forvarnarstarfs heilsugæslulækna og hjúkrunarfræðinga hvað varðar lífsstílssjúkdóma skjólstæðinga sinna. Stuðst er við aðlagaða útgáfu af mælitækinu SERVQUAL, sem gerir ráð fyrir fimm gæðavíddum; áreiðanleika, trúverðugleika, svörun og viðbrögðum, hluttekningu og áþreifanleika. Þátttakendur eru tvöhundruð og þrettán skjólstæðingar 6 heilsugæslustöðva í Reykjavík, flestir á miðjum aldri. Almenn ánægja er með heilbrigðisþjónustuna og er sterkt samband milli ánægju og upplifunar á þjónustugæðum. Að meðaltali hafði fjórðungur svarenda breytt lífsstíl sínum eftir hvatningu eða fræðslu frá lækni eða hjúkrunarfræðingi. Meginniðurstaða rannsóknarinnar er sú að hvorki heildaránægja skjólstæðinga, samskiptaþættir heilbrigðisstarfsfólks né skynjuð þjónustugæði hafa áhrif á lífsstílsbreytingar. Hugsanlegt er að úrtakshópurinn sem þó kemur tiltölulega oft til læknis, telji sig ekki þurfa á lífsstílsbreytingum að halda eða að lítið sé lagt upp úr forvarnarviðtölum á heilsugæslustöðunum, þar sem slík viðtöl og eftirfylgni þeirra geta verið tímafrek. Helsti veikleiki rannsóknarinnar verður að teljast lítil úrtaksstærð. Niðurstöðurnar gefa tilefni til frekari rannsókna á þætti heilsugæslunnar í forvörnum lífsstílssjúkdóma.