Atvinna fyrir alla : er það raunhæft?

Útdráttur Tilgangur þessa lokaverkefnis var að kanna viðhorf stjórnenda fyrirtækja til ráðningar fatlaðs fólks. Markmiðið var að skoða hvernig vinnumarkaðurinn er búinn undir stefnu stjórnvalda um atvinnu fyrir alla fatlaða með skerta vinnugetu. Horft var sérstaklega til Vesturlands í rannsókninni....

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Ingibjörg Hafsteinsdóttir
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2009
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/3966
Description
Summary:Útdráttur Tilgangur þessa lokaverkefnis var að kanna viðhorf stjórnenda fyrirtækja til ráðningar fatlaðs fólks. Markmiðið var að skoða hvernig vinnumarkaðurinn er búinn undir stefnu stjórnvalda um atvinnu fyrir alla fatlaða með skerta vinnugetu. Horft var sérstaklega til Vesturlands í rannsókninni. Notuð var eigindleg (qualitative approaches) rannsóknaraðferð og viðtöl tekin við sex stjórnendur fyrirtækja og stofnana á Akranesi. Spurt var um þeirra viðhorf og reynslu af því að hafa fatlaða einstaklinga í starfi. Rætt var við aðila hjá Atvinnu með stuðningi (AMS) í Reykjavík, Vinnumálastofnun í Reykjavík og á Akranesi ásamt aðilum frá Samtökum atvinnulífsins. Niðurstöður rannsóknar sína að sú stefna stjórnvalda að allt fatlað fólk með skerta vinnugetu eigi að hafa möguleika á starfi út á almennum vinnumarkaði er ekki raunhæf. Til þess að það verði í framtíðinni þarf að koma til aukið fjármagn og leggja þarf áherslu á að auka Atvinnu með stuðningi (AMS).