Sundkennsla á yngsta stigi grunnskóla : æfingar, tímaseðlar og leikir

Í grunnskólum á Íslandi er sund skólaskylda frá 1. bekk til 10. bekkjar. Á fyrstu tveimur árum nemenda í skólasundi er mikilvægt að huga að vatnsaðlögun þeirra og að þau finni til öryggis í vatni. Þegar nemendur eru komnir í 3. og 4. bekk er farið að huga meira að grunnfærni sundaðferðanna og undirb...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Jóna Helena Bjarnadóttir 1992-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2021
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/39611
Description
Summary:Í grunnskólum á Íslandi er sund skólaskylda frá 1. bekk til 10. bekkjar. Á fyrstu tveimur árum nemenda í skólasundi er mikilvægt að huga að vatnsaðlögun þeirra og að þau finni til öryggis í vatni. Þegar nemendur eru komnir í 3. og 4. bekk er farið að huga meira að grunnfærni sundaðferðanna og undirbúa þau fyrir frekara sundnám. Verkefnið skiptist í tvo hluta, fræðilegan hluta og sundhandbók. Í fræðilega hlutanum er fjallað um mikilvægi hreyfinga barna og mikilvæg atriði er koma að sundkennslu þeirra. Þá er fjallað um hæfniviðmið í skólasundi og hvernig þau birtast í aðalnámskrá grunnskólanna. Í fræðilega kaflanum var einnig kannað hver sé upplifun og reynsla sundkennara við grunnskóla á Íslandi. Þessu var svarað með eigindlegri aðferðafræði rannsókn með viðtölum við fjóra sundkennara og leitað svara við eftirfarandi rannsóknarspurningum: • Hvernig má aðlaga sundkennslu með tilliti til nýjunga í sundtækni og kennslufræðilegra áhersluatriða? • Hverjir eru mikilvægustu þættir í sundkennslu barna? Sundhandbókin er samin í framhaldi af rannsókn höfundar og byggð á þeim nýjungum sem koma fram í fræðilega hluta verkefnisins. Bókinni er skipt upp þar sem fram koma áherslur fyrir hvern árgang í kennslu og mun innhalda æfingar, tímaseðla og leiki sem gott er að nota fyrir nemendur í 1. - 4. bekk grunnskóla. Höfundur vonast til þess að sundkennarar geti nýtt sér sundhandbókina til að gera sundkennsluna fjölbreyttari, skemmtilegri og komið inn þeim nýjungum sem komið hafa fram á síðustu árum. Students in compulsory schools in Iceland are required to take swim classes from 1st through 10th grade. During the first two years in swim classes the importance is placed on the students’ adaptation to water and that they feel safe and comfortable. In third and fourth grade, the basic skills of swim strokes are emphasized and the students are prepared for further swim lessons. The study has two parts, a theoretical portion and a swim handbook. In the theoretical part, significance of exercise; important areas of children’s swim ...