Atvinnumál fatlaðs fólks á Akranesi : framtíðadraumar fatlaðs fólks á Akranesi : framboð á atvinnumarkaði á Akranesi að leiðarljósi og leiðir til úrbóta

Í þessu verkefni var athygli beint að atvinnumálum fatlaðs fólks á Akranesi. Verkefnið var unnið vorið 2021 og er fræðileg umfjöllun en einnig voru tekin viðtöl við fjóra fatlaða einstaklinga. Leitast var við að svara eftirfarandi spurningu: Hvaða atvinnumöguleikar standa fötluðu fólki á Akranesi ti...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Aðalheiður Rósa Harðardóttir 1992-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2021
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/39570
Description
Summary:Í þessu verkefni var athygli beint að atvinnumálum fatlaðs fólks á Akranesi. Verkefnið var unnið vorið 2021 og er fræðileg umfjöllun en einnig voru tekin viðtöl við fjóra fatlaða einstaklinga. Leitast var við að svara eftirfarandi spurningu: Hvaða atvinnumöguleikar standa fötluðu fólki á Akranesi til boða og hvernig er þjónustu við þann hóp háttað? Samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks og gildandi lög og reglugerðir á Íslandi eiga að tryggja rétt fatlaðs fólks til atvinnu. Í verkefninu verður skoðað hvernig ríki og sveitarfélög styðji við fatlað fólk í þeim málefnum. Fatlað fólk hefur lengi búið við aðgreiningu í atvinnuþátttöku og mætir ýmsum hindrunum í atvinnuleit og úti á starfsvettvangi. Þær hindranir eru t.a.m. fordómar, fjárskortur og skortur stjórnvalda á framtíðarsýn í atvinnumálum fatlaðs fólks. Tekin voru viðtöl við fjóra fatlaða einstaklinga sem eru allir búsettir á Akranesi og reynt að skyggnast inn í drauma þeirra og langanir hvað varðar atvinnu. Viðmælendur voru spurðir út í sína starfsánægju og hvaða tækifæri þau hafa haft á atvinnu í bæjarfélaginu í þeim tilgangi að leggja mat á hvort atvinnumarkaðurinn og atvinnuúrræði á Akranesi mæti kröfum þessara einstaklinga og reynt að finna leiðir til úrbóta. Niðurstöður þessa verkefnis benda til þess að vöntun sé á tækifærum í starfi fyrir fatlað fólk á Akranesi og stuðningur við atvinnuleit sé ekki nægur. Þar að auki er starfsánægju þessa hóps ábótavant og virðist sem tækifæri á vinnu þurfi að vera jafnari og stuðningur úti á vinnumarkaði þurfi að vera einstaklingsmiðaðri. Ljóst er að Akraneskaupstaður þarf að skapa sér skýrari framtíðarsýn í atvinnumálum fatlaðs fólks og veita meira fjármagni í málaflokkinn.