„Börn eru framtíð jarðarinnar" : barnvænt sveitarfélag : sjónarmið og vitneskja barna um Barnasáttmálann og réttindi barna

Hér á landi er unnið markvisst að því að innleiða réttindi barna með líkani og verkfærakistu sem nefnist barnvæn sveitarfélög. Sveitarfélag er barnvænt ef það leggur sig markvisst fram við að innleiða Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna þar sem velferð og réttindi barna liggja til grundvallar en algeng...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Elín Helga Björnsdóttir 1995-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2021
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/39518
Description
Summary:Hér á landi er unnið markvisst að því að innleiða réttindi barna með líkani og verkfærakistu sem nefnist barnvæn sveitarfélög. Sveitarfélag er barnvænt ef það leggur sig markvisst fram við að innleiða Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna þar sem velferð og réttindi barna liggja til grundvallar en algengt er að ákvarðanir sem tengjast málefnum barna séu teknar án samráðs við þau. Sveitarfélagið Akureyri, sem tekur þátt í verkefninu, hefur hlotið viðurkenningu sem slíkt, samkvæmt skilgreiningu Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna. Markmið þessarar rannsóknar er að skoða reynslu og þekkingu barna, sem búa á Akureyri og í Eyjafjarðarsveit, af lýðræðislegri þátttöku í tengslum við 1.mgr. 12. gr. sáttmálans. Vitað er að börn búa við ólíkar aðstæður og var tilgangur verkefnisins einnig að skoða hver sýn þeirra er á réttindi barna. Ritgerðin byggir á aðferðum eigindlegra rannsókna. Þátttakendur voru börn í 4. og 8. bekk í 4 grunnskólum á Akureyri og í Eyjafjarðarsveit, alls 43 börn, ásamt 2 einstaklingum sem koma að barnvænu sveitarfélagi, Barnasáttmálanum og réttindaskóla Sameinuðu þjóðanna. Tekin voru einstaklings- og rýnihópaviðtöl og við úrvinnslu gagna var þemagreiningu beitt. Helstu niðurstöður þessarar rannsóknar voru að þátttakendur kunna skil á innihaldi þeirra réttinda sem Barnasáttmálinn veitir og er skilningur þeirra almennt góður. Þátttakendur áttuðu sig ekki í öllum tilvikum á því hvaðan vitneskja þeirra kom og áttu í einhverjum tilvikum erfitt með að koma hugsun sinni í orð. Þátttakendum fannst öll börn jafn mikilvæg og að skoðanir þeirra eigi að hafa jafnt vægi en einnig kom fram að þeim fannst forsjáraðilar þeirra bera meiri virðingu fyrir skoðunum þeirra en starfsmenn skóla- og menntastofnana. Þátttakendur í réttindaskólanum, hvort sem um var að ræða í 4. eða 8. bekk, lögðu lærðan skilning í Barnasáttmálann en þátttaka nemenda í skólanum mætti í öllum tilvikum ákvæðum sáttmálans. In Iceland, systematic effort is being made to implement the rights of children with a model and a toolbox called Child Friendly ...