Fjarnám til framtíðar? : upplifun nemenda og kennara af fjarkennslu í MPM náminu við Háskólann í Reykjavík

Kórónuveirufaraldurinn Covid-19 hafði gríðarlegar breytingar í för með sér, ekki aðeins í atvinnulífinu heldur einnig í menntasamfélaginu. Háskólar hafa þurft að aðlaga hefðbundnar kennsluaðferðir yfir á stafrænt form til að leysa þær takmarkanir sem faraldurinn hefur sett. Hin raunverulega áskorun...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Þóra Kristín Pálsdóttir 1988-
Other Authors: Háskólinn í Reykjavík
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2021
Subjects:
MPM
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/39432
Description
Summary:Kórónuveirufaraldurinn Covid-19 hafði gríðarlegar breytingar í för með sér, ekki aðeins í atvinnulífinu heldur einnig í menntasamfélaginu. Háskólar hafa þurft að aðlaga hefðbundnar kennsluaðferðir yfir á stafrænt form til að leysa þær takmarkanir sem faraldurinn hefur sett. Hin raunverulega áskorun snýr þó að hjarta allrar kennslu, hvernig kennurum tekst að koma námsefni til skila í gegnum netið án þess að draga úr gæðum kennslu og upplifun nemenda. Í þessari rannsókn er reynt að komast að því hvað vel tókst til og hvað mátti betur fara við fjarkennslu í MPM náminu við Háskólann í Reykjavík. Með samblandi af eigindlegri og megindlegri rannsókn verður einnig leitast við að skoða upplifun nemenda og kennara og hvort að fjarnám geti hugsanlega spilað stærra hlutverk í framtíðarskipulagi MPM námsins. Niðurstöður rannsóknarinnar leiddu í ljós að meirihluti þátttakenda taldi að MPM námið gæti að hluta til verið kennt í fjarnámi en það þurfi að koma til móts við þörf nemenda fyrir meiri samveru og samskipti. Kennarar fundu fyrir auknu álagi og söknuðu einnig þessara umræðna sem verða til í kennslustofu. Að þessu þarf að huga ásamt þáttum eins og stuðningi við kennara, tæknimálum og upplýsingagjöf til að tryggja skilvirka fjarkennslu og jákvæða upplifun.