Summary: | Framkvæmdir á vegum borgarinnar hafa hlotið gagnrýni fyrir framúrkeyrslu á tíma og kostnaði. Markmið rannsóknarinnar var að skoða þau verkferli sem fylgt er innan gatnadeildar Reykjavíkurborgar varðandi gatnaframkvæmdir og leitast eftir að svara hvort og þá hvað í ferlinu hefði þessi áhrif á gang verkefna og koma með tillögu að úrbótum. Þannig var eitt verkefni skoðað og framkvæmd á því þarfagreining. Þarfagreiningin fólst í samanburði á nústöðu og skilgreindri framtíðarsýn. Með því að taka stöðuna og meta hvernig verkferlum var fylgt í viðkomandi verkefni var stuðst við viðtöl við þá starfsmenn borgarinnar sem komu að verkefninu, ásamt því að notaðar voru niðurstöður vinnustofu á vegum borgarinnar um framkvæmd gatnaframkvæmda. Til þess að skilgreina ákjósanleg verkferli til viðmiðunar, var leitað til reyndra aðila og upplýsinga aflað um þau verkferli sem þeir vinna eftir og hafa reynst vel. Einnig var notast við niðurstöður vinnustofu ásamt skilgreiningum úr fræðunum ásamt tilvísun í RIBA Plan of Work. Í ljós kom að verkferli innan borgarinnar eru óskýr. Þau veita ekki nægilegt aðhald eða eftirfylgni í gegnum heildarlíftíma verkefna sem þannig er einn áhrifaþátta á útkomu verkefna. Leitin að ákjósanlegum verkferlum sýndi að engir þeirra aðila sem leitað var til notuðust við sömu verkferla, þrátt fyrir sýnt notkunargildi þeirra. Samt sem áður voru þeir allir settir upp samkvæmt hefðbundnum skilgreiningum á verkferlum. Því var ákveðið að kynna og leggja til innleiðingu á nýjum verkferlum sem kallast RIBA Plan of Work. RIBA lýsir heildarferli hvers konar framkvæmda frá hugmynd, kynningu, hönnun, framkvæmd og rekstri í ákveðnum þrepum. RIBA verkferla er hægt að aðlaga að hvers kyns framkvæmdum. Þeir greina frá ábyrgð og aðkomu mismunandi aðila ásamt því að geyma mikið magn af upplýsingum og verkfærum til að gera ferlið í heild sinni auðskiljanlegt auk þess sem þeir veita aðhald, auðvelda yfirsýn og aðstoða við framvinnslu verkefna. Road constructions and maintenance projects under the administration of Reykjavík ...
|