Akreinar eða trjágreinar : tvíeggjað sverð mannaldarinnar í skipulagsmálum
Í þessari ritgerð er fjallað um höfuðborg Íslands, Reykjavík, og hvernig notkun almenningsrýma utandyra er á ársgrundvelli alltaf háð veðurfari. Rakin er, í grófum dráttum, jarðfræðileg og vistfræðileg saga landsins í samhengi við náttúruleg skóglendi og síðar skógrækt. Farið er yfir skilgreiningar...
Main Author: | |
---|---|
Other Authors: | |
Format: | Thesis |
Language: | Icelandic |
Published: |
2020
|
Subjects: | |
Online Access: | http://hdl.handle.net/1946/39310 |
Summary: | Í þessari ritgerð er fjallað um höfuðborg Íslands, Reykjavík, og hvernig notkun almenningsrýma utandyra er á ársgrundvelli alltaf háð veðurfari. Rakin er, í grófum dráttum, jarðfræðileg og vistfræðileg saga landsins í samhengi við náttúruleg skóglendi og síðar skógrækt. Farið er yfir skilgreiningar fræðimanna á ástandi jarðarinnar með tilliti til hnattrænar hlýnunar og hvað kom okkur á þann stað sem við erum í dag. Rannsókn við gerð þessarar ritgerðar felst í sögulegri skoðun á stöðu jarðkerfa og tilraunum manna til að hafa áhrif á þau sem og greiningum á tölfræði um íslenskt samfélag og veðurfar borna saman við sambærilega tölfræði frá Bandaríkjunum. Kort gerð af höfundi eru nýtt til að sýna fram á áhrifamátt skógræktar til veðurbóta og einnig hvar möguleika fyrir aukna skógrækt innan borgarmarka er að finna. Öll kortagögn koma frá Landmælingum Íslands. Saga skógræktar er rakin með hjálp bókarinnar Íslandsskógar: Hundrað ára saga en á bakvið útgáfu hennar stendur Skógrækt Ríkisins. Fræðilegar hugleiðingar er varða inngrip mannkynsins í gang jarðkerfa byggja á hugmyndum Christophe Bonneuil og Jean-Baptiste Fressoz sem þeir setja fram í bók sinni The Shock of the Anthropocene. Niðurstaða ritgerðarinnar er sú slæmt veður á Íslandi er ekki að öllu leyti náttúrulögmál heldur afleiðing skógareyðingar og ágangs mannfólks á náttúruna. Reykjavík er í kjöraðstæðu til að minnka vindstyrk í borginni og á sama tíma auka kolefnisjöfnunargetu jarðvegsins og bæta almenningsrými með gróðursetningu. Mun það efla gagnlega útiveru sem hentugan samgöngukost allt árið um kring og minnka þar með eftirspurn eftir einkabílum. |
---|