Tilgangur og notkun mælinga meðal afreksfólks HSÍ : viðtöl um upplýsingaflæði til leikmanna U-18 ára landsliðs kvenna

Handbolti er margbreytileg íþrótt og líkamlegar kröfur hans eru margþátta ásamt tæknilegum og taktsíksum þáttum. Einnig þarf að horfa á aðra þætti eins og næringu, svefn og endurheimt fyrir bætingar, sérstaklega þegar handboltafólk er komnið á hæsta stig í íþróttinni. Háskólinn í Reykjavík og Handkn...

Full description

Bibliographic Details
Main Authors: Kristín María Reynisdóttir 1997-, Steinunn Birta Haraldsdóttir 1997-
Other Authors: Háskólinn í Reykjavík
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2021
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/39217
Description
Summary:Handbolti er margbreytileg íþrótt og líkamlegar kröfur hans eru margþátta ásamt tæknilegum og taktsíksum þáttum. Einnig þarf að horfa á aðra þætti eins og næringu, svefn og endurheimt fyrir bætingar, sérstaklega þegar handboltafólk er komnið á hæsta stig í íþróttinni. Háskólinn í Reykjavík og Handknattleikssamband Íslands hafa undanfarin sex ár verið í samstarfi og haldið afkastamælingar fyrir handboltalandslið Íslands. Afkastamælingar koma með vísindalega nálgun á þjálfun og gefa þjálfurum og leikmönnum mælanlegan árangur, betri stjórnun, aðlögun og tilgang ásamt því að undirstrika skilning á lykilsviðum leikmanna líkamlega, tæknilega og taktískar kröfur handboltans. Markmið þessa verkefnis var að rýna í þá þætti sem stuðla að bættri frammistöðu U-18 ára landsliðs kvenna út frá mælingum og viðtölum og skyggnast í heim þeirra. Kom fljótlega í ljós að leikmenn hafa aldrei fengið niðurstöður úr afkastamælingum og gátu því ekki notað þær til að bæta frammistöðu, þá var brugðið á það ráð að kanna upplýsingaflæði og hvar keðjan slitnaði. Niðurstöðurnar úr þessu verkefni voru þær að Háskólinn í Reykjavík sendir gögn frá afkastamælingum til Handkanttleikssambands Íslands og senda þeir gögnin á landsliðsþjálfara og þjálfara félagsliða, þá komumst við að því að keðjan stoppar hjá þjálfurum.