Hnúðlax á Íslandi : vágestur eða velkominn? : um stjórnun ágengra tegunda á Íslandi

Verkefnið er lokað til 01.06.2022. Í þessari rannsókn er stjórnun framandi tegunda á Íslandi skoðuð út frá hnúðlaxi sem dæmi um tegund sem hefur borist til Íslands sem flækingur allt frá 1960 en fjölgaði mikið árin 2017 og 2019. Skoðunin náði til stjórnkerfis ríkisins eins og það birtist, allt frá a...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Hjörleifur Finnsson 1969-
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2021
Subjects:
Haf
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/39165
Description
Summary:Verkefnið er lokað til 01.06.2022. Í þessari rannsókn er stjórnun framandi tegunda á Íslandi skoðuð út frá hnúðlaxi sem dæmi um tegund sem hefur borist til Íslands sem flækingur allt frá 1960 en fjölgaði mikið árin 2017 og 2019. Skoðunin náði til stjórnkerfis ríkisins eins og það birtist, allt frá alþjóðasamningum, stefnumörkunum, lagasetningu, til framkvæmdar einstakra stofnana. Rannsóknin fólst í heimildavinnu og viðtölum, þar sem talað var við tíu aðila, sex í lykilstöðum í stjórnkerfinu og fjóra frá ólíkum hagsmunaaðilum í náttúruvernd og stangveiði, til þess að svara því hvaða samhengi er á milli stjórnunar íslenska ríkisins á framandi og ágengum tegundum og stefnu þess um líffræðilega fjölbreytni. Niðurstöðurnar má draga saman í þrjú megin atriði: A) Viðbrögð við komu hnúðlax til Íslands og skyndilegrar fjölgunar hans eru takmörkuð við skráningu á veiði og móttöku sýna. Engar rannsóknir eða ferli hafa verið sett sérstaklega í gang vegna komu hans. Þekkingu á grunnþáttum vistfræði hans og atferli á Íslandi er ábótavant. B) Vöktun og rannsóknum framandi tegunda á Íslandi er ábótavant. Náttúrufræðistofnun Íslands hefur ekki, hingað til, fylgst með lífríki sjávar og ferskvatns. Engar áætlanir, verkferlar eða skipulegar samhæfðar aðferðir liggja fyrir um hvernig skuli fylgjast með framandi tegundum og hvernig skuli flokka ágengar tegundir sem slíkar. C) Stjórnun lífauðlinda í stjórnkerfi íslenska ríkisins hvað varðar framandi tegundir er ábótavant á öllum stjórnunarstigum; alþjóðasamninga, stefnumörkun, lagasetning og framkvæmd. Í heimi þar sem ágengar tegundir eru ört vaxandi ógn við líffræðilega fjölbreytni, gefur rannsóknin innsýn í vandamál stjórnunar á framandi og ágengum tegundum á Íslandi og gerir tillögur um lausnir á þeim. This thesis investigates the resource management of alien species and invasive alien species (IAS) in Iceland using the example of pink salmon (Oncorhynchus gorbuscha), recently fished in greatly increased numbers. The research was directed at all levels of public administration, ...