Fæðingar á Íslandi : getur kostnaður haft á val kvenna á fæðingarstað

Markmið rannsóknarinnar var að skoða kostnað við fæðingar hér á landi og bera saman kostnað milli fæðingarstaða. Fæðingarstaðirnir sem teknir voru fyrir voru Landspítali Háskólasjúkrahús, Björkin fæðingarstofa og heimafæðingar á vegum Bjarkarinnar. Ósjúkratryggðar konur sem greiða þurfa sjálfar fyri...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Jóna Valdís Benjamínsdóttir 1994-
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2021
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/39144
Description
Summary:Markmið rannsóknarinnar var að skoða kostnað við fæðingar hér á landi og bera saman kostnað milli fæðingarstaða. Fæðingarstaðirnir sem teknir voru fyrir voru Landspítali Háskólasjúkrahús, Björkin fæðingarstofa og heimafæðingar á vegum Bjarkarinnar. Ósjúkratryggðar konur sem greiða þurfa sjálfar fyrir fæðingu gera sér ekki oft grein fyrir að mismunur getur verið á kostnaði á fæðingarstöðum og margar konur, hvort sem þær eru sjúkratryggðar eða ekki átta sig ekki á því að þær hafi val um fæðingarstað. Hugmyndin að verkefninu varð til þegar rannsakandi vann sem ritari á meðgöngu- og sængurlegudeild Landspítalans. Áhugi á fæðingarferlinu og öllu sem viðkemur því varð gríðarlegur og vildi rannsakandi kanna hliðar ferlisins sem tengjast viðskiptafræðinni. Þá fór áhuginn að beinast að fleiri fæðingarstöðum og því hvað gæti mögulega aðgreint þá þegar snýr að kostnaði. Í rannsókninni var reynt að komast að því hver munur sé á kostnaði milli fæðingarstaða og grein gerð fyrir mismuninum. Einnig verður fjallað um mismunandi þjónustustig fæðingarstaðanna til þess að gera grein fyrir þeirri þjónustu sem veitt er á hverjum stað fyrir sig. Niðurstöður leiddu í ljós að mögulegt var að gera samanburð á kostnaði. Heimafæðingar á vegum Bjarkarinnar komu út sem hagkvæmasti kostur ósjúkratryggðra kvenna sem þurfa sjálfar að greiða fyrir þjónustu sem þær fá. Hagkvæmara er fyrir ósjúkratryggða konu utan EES að fæða hjá fæðingarstofu Bjarkarinnar þar sem auka álag er sett á verð ósjúkratryggðra kvenna utan EES hjá Landspítalanum. Fyrir konur innan EES getur þó reynst erfitt að meta hvort hagkvæmara sé að fæða á Landspítalanum eða Björkinni fæðingarstofu þar sem kostnaðarþættir og þjónusta eru óljós fyrir innlögn. Kostnaðarþættir sem notaðir voru, voru opinberar tölur og miðað var við árið 2021. Kostnaðarupplýsingar voru fundnar á heimasíðum heilbrigðisstofnanna ásamt heimasíðu Sjúkratrygginga Íslands. Lykilorð: DRG, Landspítali, Björkin, Fæðing, Kostnaðarþættir The aim of the study was to examine the cost of births in Iceland and also ...