Mannauðsstjórnun : rúsínan í pylsuendanum

Þessi ritgerð fjallar um mannauðsstjórnun á Íslandi og tekur á því hvort munur sé á mannauðsstjórnun innan opinbera vinnumarkaðarins og hins almenna. Einnig var athugað hvað starfandi mannauðsstjórar teldu hlutverk mannauðsstjóra vera ásamt því hvað myndi einkenna góðan mannauðsstjóra. Framkvæmd var...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Maríanna Margeirsdóttir 1997-
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2021
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/39139
Description
Summary:Þessi ritgerð fjallar um mannauðsstjórnun á Íslandi og tekur á því hvort munur sé á mannauðsstjórnun innan opinbera vinnumarkaðarins og hins almenna. Einnig var athugað hvað starfandi mannauðsstjórar teldu hlutverk mannauðsstjóra vera ásamt því hvað myndi einkenna góðan mannauðsstjóra. Framkvæmd var eigindleg rannsókn þar sem tekin voru viðtöl við sex starfandi mannauðsstjóra, þrjú viðtöl við mannauðsstjóra innan opinberra stofnana og þrjú viðtöl við mannauðsstjóra á almennum markaði. Markmið rannsóknarinnar var að svara rannsóknarspurningunni: Er munur á milli mannauðsstjórnunar innan opinberra stofnana og einkarekinna fyrirtækja? Niðurstöður rannsóknarinnar leiddu í ljós að munur væri á þessum tveimur mörkuðum og mannauðsstjórnunin innan þeirra sömuleiðis væri mismunandi, þar sem opinberi markaðurinn stjórnast aðallega af lögum og reglum stjórnsýslunnar og sá síðari hefur aðeins meira frjálsræði þegar kemur að mannauðsmálum innan fyrirtækja. Rannsóknin leiddi jafnframt í ljós að góður mannauðsstjóri þyrfti að hafa mikinn áhuga á fólki og að geta átt auðvelt með samskipti við það. Hann þyrfti einnig að vera með mikla tilfinningagreind, ásamt því að kunna á rekstur fyrirtækja og stofnana og síðast en ekki síst geta haldið mörgum boltum á lofti í einu verkefnalega séð. Það kom einnig fram við framkvæmd rannsóknarinnar að hlutverk mannauðsstjóra er margþætt og fer að mestu eftir stefnum og áherslum skipulags-heildarinnar. Samhljóða niðurstaða viðmælenda var þó að hlutverk mannauðsstjóra væri að aðstoða stjórnendur fyrirtækisins við að verða betri stjórnendur og að mannauðsstjórinn væri frekar á bakvið tjöldin heldur en í augsýn. This thesis explores the field of Human Resource Management in Iceland. The reasearch project furthermore discusses if there are differences in Human Resource Management between the two working sectors, public and privite. To further examine the topic of Human Resource Management, acting Human Resource Managers expressed their own idea of what they believe to be the role and qualities of ...