Hver er hagnaðurinn? : sviðslistamenn og frumkvöðlar

Í þessari ritgerð verður markvisst unnið að því skoða og bera saman sjálfstæðu íslensku sviðslistasenuna og frumkvöðlastarfsemi. Með það í huga verður athugað hvort það er eitthvað í fari frumkvöðla eða vinnuaðferðum þeirra sem gæti nýst sviðslistamönnum. Skoðaðir verða innviðir þessa tveggja atvinn...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Brynhildur Sigurðardóttir 1997-
Other Authors: Listaháskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2021
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/39083
Description
Summary:Í þessari ritgerð verður markvisst unnið að því skoða og bera saman sjálfstæðu íslensku sviðslistasenuna og frumkvöðlastarfsemi. Með það í huga verður athugað hvort það er eitthvað í fari frumkvöðla eða vinnuaðferðum þeirra sem gæti nýst sviðslistamönnum. Skoðaðir verða innviðir þessa tveggja atvinnugreina eins og stofnanir og styrkir sem koma til móts við starfsemi þeirra. Eftirfarandi þættir voru skoðaðir við gerð þessarar ritgerðar: hvaða mikilvæga hlutverki gegna þessar starfsgreinar í íslensku samfélagi?, Hverjar eru vinnuaðferðir þessa starfsgreina? - og hvernig eru verkefni þeirra fjármögnuð? Niðurstöður ritgerðarinnar sýndu frammá að báðar starfsgreinar gegna mikilvægu hlutverki í uppbyggingu íslensks samfélags. Margt í fari frumkvöðla og sviðslistamanna er líkt en stærsti munur þeirra er að ásetningur þeirra er ekki sá sami. Sköpun frumkvöðulsins er fjárhagslega drifin. Sviðslistamaðurinn skapar list vegna þess að það er köllun hans, hagnaðurinn er sá að sköpunin leiðir af sér eitthvað gott fyrir samfélagið. Þessi ritgerð notast við ýmsar heimildir og viðtöl. Viðmælendur eru þeir Friðrik Friðriksson, framkvæmdastjóri Tjarnarbíós og Hallur Þór Sigurðarson, lektor við viðskiptadeild Háskólans í Reykjavík.