ARFURINN : sveigjanlegar útsetningar á íslenskum þjóðlögum fyrir strengjanemendur á grunnstigi

ARFURINN er safn sveigjanlegra útsetninga á íslenskum þjóðlögum fyrir strengjanemendur á grunnstigi. Með verkefninu sameinar höfundur þrjú hugðarefni sín, íslenskan þjóðlagaarf, skapandi starf í tónlistarnámi og strengjakennslu. Verkefnið á sér langan aðdraganda en höfundur byggir það á eigin kennsl...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Anna Hugadóttir 1980-
Other Authors: Listaháskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2021
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/38990
Description
Summary:ARFURINN er safn sveigjanlegra útsetninga á íslenskum þjóðlögum fyrir strengjanemendur á grunnstigi. Með verkefninu sameinar höfundur þrjú hugðarefni sín, íslenskan þjóðlagaarf, skapandi starf í tónlistarnámi og strengjakennslu. Verkefnið á sér langan aðdraganda en höfundur byggir það á eigin kennslureynslu og þeim áhrifum sem hann hefur orðið fyrir sem kennari innanlands og utan síðastliðin 15 ár. Helstu áhrifavaldar við gerð útsetninganna eru aðferð Kodálys og skyldar kennsluaðferðir í hljóðfærakennslu, íslenskar og norrænar þjóðlagaútsetningar og svo viðtöl við kollega höfundar í stétt strengjakennara sem hafa miðlað af reynslu sinni af miklu örlæti. Allar útsetningarnar eru byggðar upp á sama hátt; laglína er studd þremur fylgiröddum á mismunandi erfiðleikastigi sem henta allt frá byrjendum til nemenda sem lokið hafa grunnstigi samkvæmt viðmiðum aðalnámskrár. Allar raddir eru skrifaðar út fyrir fiðlu, víólu, selló og kontrabassa. Hver nemandi getur fengið rödd við sitt hæfi og því má nota útsetningarnar með fjölbreyttum nemendahópi. Útsetningarnar ásamt ítarefni, kennsluleiðbeiningum og hljóðskrám eru aðgengilegar á heimasíðu höfundar, www.annahuga.is og er aðgangur notendum að kostnaðarlausu. Verkefninu er ætlað að stuðla að varðveislu og miðlun menningararfsins, bæta framboð á námsefni fyrir strengjanemendur á grunnstigi og kynna nemendur og kennara fyrir þeim miklu möguleikum sem felast í íslenskri þjóðlagatónlist. ARFURINN (HERITAGE) is a collection of flexible arrangements of Icelandic folksongs for young string players. The project combines three interests of the author, Icelandic folk music heritage, creative music teaching and string instrument pedagogy. The project has been long in the making. It is based on the author´s 15 years of teaching experience and various influences experienced in Iceland and abroad. The main contributing factors to the arrangements are the Kodály method and related methods in instrumental teaching, Icelandic and Nordic folk music arrangements and interviews with fellow ...