„Samfélagsmiðlar eru ekki sökudólgurinn heldur fólkið sem notar þá“ : samfélagsmiðlar, áhrifavaldar og sjálfsmynd ungra kvenna á Íslandi

Hröð framþróun á sviði tækni síðastliðna áratugi hefur umbylt því hvernig fólk tjáir sig og hefur samskipti. Með tilkomu internetsins hafa svokallaðir samfélagsmiðlar litið dagsins ljós. Notendavænir miðlar á borð við Instagram hafa notið mikillar hylli, sér í lagi hjá unga fólkinu, sem er oftar en...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Unnur Freyja Víðisdóttir 1996-
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Bachelor Thesis
Language:Icelandic
Published: 2021
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/38943
Description
Summary:Hröð framþróun á sviði tækni síðastliðna áratugi hefur umbylt því hvernig fólk tjáir sig og hefur samskipti. Með tilkomu internetsins hafa svokallaðir samfélagsmiðlar litið dagsins ljós. Notendavænir miðlar á borð við Instagram hafa notið mikillar hylli, sér í lagi hjá unga fólkinu, sem er oftar en ekki fljótt að tileinka sér og nýta tækninýjungar í daglegu lífi. Þeir aðilar sem eru hvað virkastir á miðlinum og hafa jafnframt stærsta fylgjendahópinn þar eru oftar en ekki kallaðir áhrifavaldar. Áhrifavaldur er hver sá sem getur haft áhrif á eða breytt því hvernig annað fólk hegðar sér. Þessi áhrif geta ýmist verið jákvæð og neikvæð. Markmið þessarar rannsóknar er að skoða samfélagsmiðlanotkun ungra kvenna á Íslandi, áhrif miðlanna á sjálfsmynd þeirra og hlut áhrifavalda í þeim efnum. Rapid technological changes of the 21st century have revolutionized how people communicate and express themselves. Social media platforms such as Instagram, are particularly popular among young people, who quickly adapt to new technology. The most active, engaging, social media users, with the largest following are considered influencers. An influencer is anyone who can influence or change the behavior of other people. The objective of this study is to bring to light the link between social media usage, influencers and the effect they have on young women in Iceland. The study examines what these effects are and how they shape self-identity of young, Icelandic women.