Ljósáta í Eyjafirði : líffræði, frummat á stofnstærð og möguleg nýting

Verkefnið er lokað til 22.04.2025. Verkefnið fjallar almennt um tegundir ljósátu við strendur Íslands, með sérstaka áherslu á vistfræði ljósátu í Eyjafirði. Fjallað er um sjófræði og vistkerfi Eyjafjarðar sem byggir að miklu á áður óbirtum rannsóknum á ljósátu, nytjastofnum og mikilvægi ljósátu sem...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Salína Valgeirsdóttir 1996-
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2021
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/38925
Description
Summary:Verkefnið er lokað til 22.04.2025. Verkefnið fjallar almennt um tegundir ljósátu við strendur Íslands, með sérstaka áherslu á vistfræði ljósátu í Eyjafirði. Fjallað er um sjófræði og vistkerfi Eyjafjarðar sem byggir að miklu á áður óbirtum rannsóknum á ljósátu, nytjastofnum og mikilvægi ljósátu sem fæðu dýra í firðinum. Rætt er um mögulega nýtingu ljósátu í Eyjafirði og gerð grein fyrir nýrri tækni þar sem nýting ljósátu kemur við sögu. Víða um heim eru stundaðar veiðar á ljósátu en mest af henni er veitt í Suður-Íshafi, meirihluti af afurðum hennar er notað í fóður fyrir fiskeldi. Ljósáta er dýrasvif og afar mikilvæg fyrir lífríkið þar sem hún er fæða fyrir margar tegundir fiska, sjófugla og sjávarspendýra. Hún fer í miklar lóðréttar dægurgöngur og er þar af leiðandi nauðsynleg í líffræðilegu kolefnisdælunni. Eyjafjörður er meðal lengstu fjarða hér við land og sjórinn sem rennur í hann kemur frá Irmingerstraumi. Reglulegar mælingar á yfirborðshita sjávar við Hjalteyri eru gerðar hjá Hafrannsóknastofnun og er hiti sjávar almennt talinn hærri vestanmegin í firðinum. Frá árinu 1992 hefur farið fram Eyrall í firðinum, en í þessum leiðangri er stofnstærð fiska mæld. Ljósáta var mæld með bergmálsmælingum í Eyjafirði árið 2019. Talið er að mikið hafi verið um ljósátu frá mynni fjarðarins að Hörgárósum. Áætlað er að þéttleiki hennar í firðinum sé svipaður og áður hefur verið mældur í Ísafjarðardjúpi. Meginniðurstaða verkefnis er að lífmassi ljósátu í Eyjafirði sé umtalsverður og mögulega sé grundvöllur til að nýta ljósátu til verðmætasköpunar án þess að skaða lífríki eða vistfræði fjarðarins. Lykilorð: Ljósáta, nytjastofnar, líffræði, vistkerfi, stofnstærð, nýting The project generally deals with species of krill off the coast of Iceland with special emphasis on the ecology of krill in Eyjafjörður. The oceanology and ecosystem of Eyjafjörður are discussed, which are largely based on previously unpublished research on krill, commerical stocks and importance of krill as food for animals in the fjord. The possible ...