Samanburður á hámarkssúrefnisupptöku, Counter-movement hopp próf og 10 m spretti hjá kvenkyns crossfitturum og hlaupurum

Tilgangur: Markmið rannsóknarinnar var að sjá hvort að það væri munur á þremur prófum sem mæla loftháð þol, stökkraft og spretthraða á milli crossfittarar og hlaupara. Líkamsprófin voru VO2max, CMJ og 10 m sprettur með tilhlaupi. Aðferð: Auglýsingu var sent á crossfitstöðvar og hlaupahópa þar sem bo...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Árni Olsen Jóhannesson 1997-
Other Authors: Háskólinn í Reykjavík
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2021
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/38838
Description
Summary:Tilgangur: Markmið rannsóknarinnar var að sjá hvort að það væri munur á þremur prófum sem mæla loftháð þol, stökkraft og spretthraða á milli crossfittarar og hlaupara. Líkamsprófin voru VO2max, CMJ og 10 m sprettur með tilhlaupi. Aðferð: Auglýsingu var sent á crossfitstöðvar og hlaupahópa þar sem boðið var kvenkyns crossfittara og hlaupara á aldrinum 20-50 ára í mælingu. Áhugasamir höfðu samband við umsjónarmenn rannsókna um að taka þátt. Níu crossfittarar og 16 hlauparar tóku þátt. Marktækur munur var á meðalaldri crossfittara og hlaupara, crossfittarar voru níu árum yngri en hlaupara. Mælingarnar fóru fram á íþróttarannsóknarstofu í Háskólanum í Reykjavík. Við úrvinnslu gagna var notað SPSS og töflur voru settar upp í word. Niðurstöður: Independant T-test sýndi marktækan munu á milli crossfittara og hlaupara í CMJ (t(23)= 2,25, p < 0,05), ekki fannst marktækur munur á VO2max (t(23)= -1,4, p > 0,05) og á 10 m spretti (t(23)= -1,1, p > 0,05). Ályktanir: Álykta má að konur í crossfit hoppa almennt hærra en kvenkyns hlauparar, má áætla að það sé vegna mismunandi kröfur crossfit og hlaup, þar sem styrktarþjálfun er eitt aðalatriði í crossfit en í hlaupi er meira áhersla á þol.