Íþróttastarf barna og frammistaða í hreysti prófum : þátttaka í skipulögðu íþróttastarfi hjá börnum borið saman við frammistöðu í hreysti prófum

Tilgangur: Tilgangur rannsóknarinnar var að bera saman niðurstöður hreysti prófa við þátttöku barna í skipulögðu íþróttastarfi, skoða hvort hlutfall þátttakenda sem æfa ekki íþróttir sé að aukast og að kanna hvort ástundun þátttakenda í skipulögðu íþróttastarfi hafi tekið breytingum. Aðferð: Unnið v...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Björk Varðardóttir 1985-
Other Authors: Háskólinn í Reykjavík
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2021
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/38826
Description
Summary:Tilgangur: Tilgangur rannsóknarinnar var að bera saman niðurstöður hreysti prófa við þátttöku barna í skipulögðu íþróttastarfi, skoða hvort hlutfall þátttakenda sem æfa ekki íþróttir sé að aukast og að kanna hvort ástundun þátttakenda í skipulögðu íþróttastarfi hafi tekið breytingum. Aðferð: Unnið var með fyrirliggjandi gögn sem samanstóðu af niðurstöðum úr hreysti mælingum hjá 1. og 2. bekk í Snælandsskóla og svörum við spurningarlista. Prófin sem um ræðir voru langstökk, 20 metra spretthlaup, boltakast og sex mínútna hlaupa / göngu próf. Þátttakendur rannsóknarinnar var sami úrtakshópur, nú í 2. og 3. bekk. Til að hægt væri að greina breytingar á ástundun í íþróttastarfi, var sami spurningarlisti sendur aftur út til foreldra með 92% svarhlutfalli. Niðurstöður: Ekki var marktækur munur á frammistöðu í neinum af hreystisprófum eftir því hvort og/eða hversu margar íþróttagreinar þátttakendur stunduðu. Hlutfallslega stunduðu flest börn eina íþrótt, það fjölgaði í hópi barna sem stunduðu fleiri íþróttagreinar milli ára og þeim fækkaði sem stunda enga íþrótt. Ályktanir: Hugsast getur að ekki sé marktækur munur á milli frammistöðu í hreysti prófum og virkni í íþróttastarfi vegna þess hversu lítill úrtakshópurinn er. Hlutfall þátttakenda sem æfa ekki þróttir minnkaði en það stangast á við almennan fréttaflutning árið 2021.