Tengsl áfalla í æsku og erfiðrar fæðingarreynslu meðal kvenna á Íslandi: Niðurstöður úr Áfallasögu kvenna

Bakgrunnur: Áföll í æsku hafa verið skilgreind sem atburðir sem eru algengustu og alvarlegustu streituvaldarnir sem börn geta upplifað, til dæmis að verða fyrir ofbeldi, vanrækslu eða einelti. Þau geta haft víðtæk áhrif á heilsu og velferð einstaklinga til lengri tíma, meðal annars á þætti tengda me...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Ása Lind Sigurjónsdóttir 1990-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2021
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/38801
Description
Summary:Bakgrunnur: Áföll í æsku hafa verið skilgreind sem atburðir sem eru algengustu og alvarlegustu streituvaldarnir sem börn geta upplifað, til dæmis að verða fyrir ofbeldi, vanrækslu eða einelti. Þau geta haft víðtæk áhrif á heilsu og velferð einstaklinga til lengri tíma, meðal annars á þætti tengda meðgöngu og fæðingu. Upplifun kvenna af fæðingarreynslunni getur verið þýðingarmikil og haft áhrif á heilsu konunnar og á samband hennar við barnið. Til þessa hefur sambandið á milli áfalla í æsku og erfiðrar fæðingarreynslu ekki verið rannsakað. Markmið: Markmiðið með þessari rannsókn var að skoða sambandið á milli áfalla í æsku og erfiðrar fæðingarreynslu á meðal kvenna á Íslandi. Sambandið var skoðað eftir bakgrunni þátttakenda, tegund áfalla í æsku og fjölda áfalla í æsku. Aðferð: Notuð voru gögn úr rannsókninni Áfallasaga kvenna. Þátttakendur voru íslenskar konur, 18 ára og eldri (N=31.811). Þátttakendur svöruðu rafrænum spurningalista um áfallasögu og heilsufar, meðal annars erfiða fæðingarreynslu. Spurningalistinn The Adverse Childhood Experiences International Questionnaire (ACE-IQ) var notaður til þess að mæla áföll í æsku. Lógístísk aðhvarfsgreining var notuð til þess að meta sambandið á milli áfalla í æsku og erfiðrar fæðingarreynslu. Leiðrétt var fyrir aldri annars vegar og aldri, menntun og tekjum hins vegar. Reiknað var gagnlíkindahlutfall (GH) og 95% öryggisbil (ÖB). Niðurstöður: Þátttakendur sem luku við að svara spurningalistanum um áföll í æsku (ACE-IQ) og spurningunni um erfiða fæðingarreynslu voru 23.841 talsins. Af þeim höfðu 29,2% upplifað erfiða fæðingarreynslu. Allar tegundir áfalla voru algengari meðal þátttakenda sem höfðu upplifað erfiða fæðingarreynslu. Sambandið á milli áfalla í æsku og erfiðrar fæðingarreynslu var sterkast hjá þeim sem höfðu orðið vitni að ofbeldi í samfélaginu (GH 2,04; 95% ÖB 1,75-2,37), orðið fyrir líkamlegu ofbeldi (GH 1,95; 95% ÖB 1,71-2,23) og upplifað stríð eða annað ofbeldi af völdum hópa (GH 1,84; 95% ÖB 1,37-2,49). Hlutfall þátttakenda sem hafði upplifað erfiða ...