Icelandair og mikilvægi þess fyrir íslenskt samfélag. Áhrif Icelandair á íslenskt samfélag með sérstöku tilliti til ferðaþjónustunnar

Árið 2010 var merkilegt ár fyrir Íslendinga þar sem Eyjafjallajökull setti Ísland á heimskortið. Gróusögur af einstaklingum frá Íslandi sem búa í torfbæjum og ferðast milli staða á sleðahundum lutu í lægra haldi fyrir ævintýralegu landi elds, íss og norðurljósa. Ísland varð framandi og spennandi fer...

Full description

Bibliographic Details
Main Authors: Daníel Orri Jóhannsson 1997-, Jón Már Ferro 1995-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2021
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/38638
Description
Summary:Árið 2010 var merkilegt ár fyrir Íslendinga þar sem Eyjafjallajökull setti Ísland á heimskortið. Gróusögur af einstaklingum frá Íslandi sem búa í torfbæjum og ferðast milli staða á sleðahundum lutu í lægra haldi fyrir ævintýralegu landi elds, íss og norðurljósa. Ísland varð framandi og spennandi ferðamannastaður. Eftir gosið jókst ferðamannastraumurinn til landsins til muna og hefur ferðaþjónustan síðan þá verið stærsta atvinnugrein þjóðarinnar. Icelandair er rótgróið flugfélag í íslensku samfélagi og hefur það átt stóran hlut í þróun atvinnugreinarinnar. Fyrirtækið hefur gengið í gegnum súrt og sætt en ávallt lent á báðum fótum. Náttúruhamfarir, hryðjuverk og heimsfaraldur hafa haft mikil áhrif á ferðamennsku um allan heim og er Ísland engin undantekning frá því. Flugfélagið spilar stóran þátt í ferðaþjónustu Íslands, verandi eitt af fáum flugfélögum sem starfrækir höfuðstöðvar hér á landi. Markmið rannsóknarinnar var að athuga mikilvægi flugfélagsins Icelandair fyrir íslenskt samfélag og þá með sérstöku tilliti til ferðaþjónustunnar. Innviðir, uppbygging og almennt starf fyrirtækisins var skoðað en einnig var gerð eigindleg rannsókn þar sem fimm viðtöl voru tekin við ólíka aðila sem hafa mikla innsýn í ferðaþjónustuna og allar hliðar hennar. Niðurstöður rannsóknarinnar leiddu í ljós að mikilvægi Icelandair er margþætt og þá sérstaklega fyrir ferðaþjónustuna, atvinnulífið og þróun atvinnugreinarinnar. Viðhorf viðmælandanna var almennt jákvætt í garð Icelandair en einnig vöknuðu spurningar sem athyglisvert væri að kanna í annarri rannsókn. Lykilorð: Samfélagsleg áhrif, samkeppni, leiðakerfi, markaðssetning áfangastaða, hlutverk fyrirtækja og stofnanna og betur borgandi ferðamenn. 2010 was a remarkable year for Iceland due to the eruption of Eyjafjallajökull which put Iceland on the world map. Before nations around the world didn‘t know what „Iceland“ was and the few that knew about our existance thought we lived in sod houses and traveled around dog sledding. After the eruption toursits started traveling to ...