Reindeer in Space

Jarðvegseyðing af völdum ofbeitar á Íslandi hefur hlotið þónokkra athygli vísindamanna. Áhrif sauðfjárbeitar á ferlið er viðurkennd sem ein af megin orsökum jarðvegseyðingar á meðan hlutur villtra dýra er lítt þekkt stærð. Ný gögn sem sýna lífmassa–efnaskipti hreindýra á Íslandi og líkja eftir dreif...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Marteinn Möller 1993-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:English
Published: 2021
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/38619
Description
Summary:Jarðvegseyðing af völdum ofbeitar á Íslandi hefur hlotið þónokkra athygli vísindamanna. Áhrif sauðfjárbeitar á ferlið er viðurkennd sem ein af megin orsökum jarðvegseyðingar á meðan hlutur villtra dýra er lítt þekkt stærð. Ný gögn sem sýna lífmassa–efnaskipti hreindýra á Íslandi og líkja eftir dreifingu þeirra má nýta sem fyrirboða á viðveru þeirra á ákveðnu svæði. Gögnin innihalda staðsetningu í formi rasta og líkja eftir beitarálagi hreindýra. Gróðurstuðull var notaður sem fyrirboði á framboði fóðurs sem borið var saman við lífmassa gögn hreindýra og með því ákvarðað hvar hætta á ofbeit gat verið til staðar. Til þess voru gerð fjögur kort af úrtakssvæði í Úthéraði á Austurlandi sem sýna áhættusvæði fyrir ofbeit hreindýra. Kortin voru gerð úr ókeypis gögnum fjögurra mismunandi gervihnattamynda, aðgengilegum almenningi, með mismunandi nema. Gervihnettirnir leiddu af sér ólíkar niðurstöður vegna mismunandi upplausnar í nemunum það er rúm– og tímaupplausnar. Nemar með háa rúmupplausn sýndu smáatriði sem voru ómerkjanleg með lágri rúmupplausn en þeir höfðu lága tímaupplausn og voru því viðkvæmir fyrir skýjahulu. Nemar með háa tímaupplausn höfðu lága rúmupplausn og greindu því síður smáatriði en höfðu samsett gögn yfir tímabilið og voru því ónæmari fyrir skýjahulu. Þetta gerði þau áreiðanlegri og voru þau að auki minni að stærð og kröfðust þar af leiðandi minni reiknigetu. Há tímaupplausn var því ákvarðað sem ákjósanlegri eignileiki gagna fyrir víðtækar áhættu greiningar fyrir ofbeit. The impact of sheep on soil erosion in Iceland is widely acknowledged as a central element of the process, while wildlife grazing pressure has been left largely unexplored. Novel metabolic biomass data of reindeer (Rangifer tarandus) in Iceland, including their modelled spatial distribution, can be used as a predictor of reindeer presence and related to their grazing pressure. In this study, I used the NDVI extracted from four different publicly available satellite products as a predictor of forage availability and compared it to the ...