Summary: | Inngangur: Algengi stoðkerfisvandamála meðal tónlistarfólks er hátt og þá sérstaklega meðal strengjaleikara. Rannsóknir hafa sýnt að einkenni birtast oftast áður en atvinnuferill hefst og því er mikilvægt að grípa snemma inn í nám tónlistarnemenda með ýmsu forvarnarstarfi. Slíkt starf innan tónlistarskóla hér á landi hefur lítið verið skoðað og í raun er ekki vitað hvort nemendum og kennurum býðst fræðsla eða aðstoð til að sporna gegn álagsmeiðslum tengd hljóðfæraleik. Markmið: Að skoða heilsutengda hegðun strengjahljóðfæranemenda og -kennara, líkamsvitund, algengi stoðkerfiseinkenna sem og þekkingu þeirra á stoðkerfiseinkennum, forvörnum og líkamsstöðu. Aðferðir: Rafræn könnun var send til strengjahljóðfæranemenda og -kennara fimm tónlistarskóla. 45 einstaklingar svöruðu könnuninni (76% konur), 23 nemendur (21 ± 5 ára) og 22 kennarar (52,6 ± 10,8 ára). Kí-kvaðrat-próf voru notuð til að bera saman kennara og nemendur og T-próf voru notuð til að bera saman meðaltöl hópanna tveggja. Fylgnistuðull (Pearson‘s correlation) var reiknaður til að skoða fylgni milli ýmissa þátta; a) fræðslu/almennrar hreyfingar/sértækrar þjálfunar og verkja, b) fræðslu/hreyfingar og líkamsvitundar og c) líkamsvitundar og verkja. Niðurstöður: 20 af 23 nemendum höfðu enga eða litla fræðslu fengið um stoðkerfiseinkenni, líkams-beitingu, forvarnir eða mikilvægi hreyfingar. 41% kennara taldi sig ekki hafa næga þekkingu til að veita nemendum sínum ráðleggingar um forvarnir og líkamsbeitingu. 42% þátttakenda greindu frá núverandi stoðkerfiseinkennum og hafði meiri hluti þeirra glímt við einkenni í meira en þrjá mánuði. Ekki fundust marktæk tengsl milli ástundunar forvarna og hversu lengi stoðkerfiseinkenni höfðu varað. Ályktun: Skortur er á heilsutengdri hegðun meðal strengjanemenda og stór hluti kennara telur sig ekki hafa næga þekkingu til að veita nemendum sínum ráðleggingar um forvarnir og líkamsbeitingu. Þessar niðurstöður undirstrika þörfina á innleiðingu heilsutengds námsefnis í námskrá tónlistarskóla og að tónlistarstofnanir taki ábyrgð ...
|