Summary: | In questo elaborato viene discusso il tema dei cosiddetti Viaggi verso sud degli islandesi nell’Alto Medioevo, dall’inizio dell’XI secolo fino all’inizio del XIV secolo. I viaggi verso sud erano viaggi effettuati verso luoghi sacri, ad esempio Roma, Costantinopoli, Gerusalemme, Santiago di Compostela, ecc. Nella maggior parte dei casi si trattava di pellegrinaggi, cioè viaggi in un luogo santo per motivi religiosi, ma i motivi dei viaggi potevano anche essere diversi. Nella tesi vengono presentati i pellegrini islandesi e vengono esaminate le ragioni dei loro viaggi verso sud. Saranno inoltre esaminate le conoscenze sui viaggi e sulle destinazioni che i potenziali pellegrini avevano o potevano acquisire in Islanda e da dove avrebbero potuto ottenere queste informazioni. Infine, verranno discussi gli effetti o le conseguenze dei viaggi sugli individui in questione e sulla società islandese e si trarranno conclusioni sull’argomento. Í þessari ritgerð verður fjallað um svokallaðar Suðurgöngur Íslendinga á hámiðöldum, frá byrjun 11. aldar til upphafs 14. aldar. Suðurgöngur voru ferðir sem farnar voru til heilagra staða, s.s. Rómar, Miklagarðs, Jerúsalem, Santiago di Compostela o.fl. Í flestum tilvikum var um að ræða pílagrímaferðir, þ.e. ferðalag til heilags staðar af trúarlegum ástæðum, en ástæður ferðanna gátu einnig verið aðrar. Í ritgerðinni er athugað hverjir íslensku pílagrímarnir voru og hvaða ástæður lágu að baki Suðurgöngum þeirra. Þá verður athugað hvaða vitneskju um ferðalagið og áfangastaðinn tilvonandi pílagrímar höfðu eða gátu aflað sér á Íslandi og hvaðan þeir fengu hana. Loks verður fjallað um það hvaða áhrif eða afleiðingar Suðurgöngurnar höfðu á viðkomandi einstaklinga og íslenskt samfélag og dregnar ályktanir um viðfangsefnið.
|